Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1979, Page 28

Heimilisblaðið - 01.03.1979, Page 28
öskur handan við átti alls ekki heima í slíku samkvæmi. „Oj. hvað þú hefur óhreinkað þig í framan,“ bætti hún við með vanþóknun, þegar hún sá stríðsmálninguna á andliti Hvíta Arnar. Ekki var laust við það, að höfðingjan- um væri misboðið við skilningsleysi þess- arar hvítu konu á nauðsyn og áhrifamætti stríðsmálningar, en þörfin fyrir að ganga í augun á henni með vopnfimi sinni olli því, að hann lét sem ekkert væri. „0, hvíta kona,“ sagði hann og benti á sófasvæfil sem lá á grasflötinni. „Sérðu stóra vísundinn þarna úti á gresjunni? Hann skal að velli lagður fyrir snilldar skotfimi Hvíta Arnar!“ Hann miðaði og skaut, og honum til mikillar gleði sat örin föst djúpt í hrygg vísundarins. Hann féll á staðnum. „Sástu, þetta var þó vel af sér vikið!“ „En Carl Aage, ertu alveg genginn af vitinu! Þessi fallegi útsaumaði púði.“ Ing- er Áise var sannarlega hneyksluð á þessu framferði. „Hvað heldurðu að hún mamma þín segi' við þessu?“ Það var síður en svo skemmtilegt fynr indíánahöfðingja að vera minntur á það, að 'hann byggi við móðurlega stjórn sízt af öllu þegar maður var nýbúinn að leysa af hendi afreksverk sem var enganvegin11 ætlað mæðrum að horfa á. Þess vegna er það skiljanlegt, að Hvítur örn féll nú út" úr hlutverki sínu gersamlega. • „Hugsa þú bara um þínar brúður, ann- ars skal ég senda pílu gegnum magann a þeirri feitustu," hrópaði hann í gremju yfir fullkomnu skilningsleysi hennar a hlutverki og hreysti indíána. „Æ, hvað þú ert eitthvað leiðinlegur í . (í dag! Eg vil alls ekki horfa á þig framar, sagði Inger Lise og þrýsti brúðunni sinni að sér, þessari sem hann var örugglega að hóta að hæfa með pílu sinni. Svo stökk hún niður af bekknum og hljóp heim að húsinu, en Carl Aage klifraði upp á trja- stubbinn til að fylgjast með flótta hennai'- Honum gramdist það, að hún skyldi þannig hafa haft síðasta orðið, og í ÞV1 skyni að endurheimta eitthvað af virðing11 sinni kom honum til hugar að gera nú eitt- hvað til þess bæði að ögra henni og sann- færa hana um mikilleika sinn og kunnáttu. Hann stökk ofan af trjábolnum, tók ser stöðu við stauragirðinguna, spennti bog- ann eins mikið og hann gat og hleypti gegnum rifuna á girðingunni, án þess að miða á nokkuð sérstakt. En í sömu andrá og hann hafði hleyp^ af, varð honum fyrst ljóst, hve vanhugsuð þessi athöfn hans var. Hann minntist þe^ allt í einu, hve oft Inger Lise hafði ein- mitt gægzt gegnum þetta gat í bjálkaverk- inu; og sem hörmulegt svar við óttakennd hans, kvað nú við mikið skelfingaróp, °° um leið heyrðist kvenmannsrödd hrópa upp: „0, elsku barnið mitt! Augað í þér augað í þér!“ 64 H E I M I L I S B L A Ð I P

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.