Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 13

Heimilisblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 13
Vlrti hann fyrir sér með einkennilega undr- j|ndi svip. Hún leit undir eins undan og jfikaði kolli. „Já — því í kvöld verðum Vlð að koma fram eins og við værum vin- 11 > ‘ sagði hún samþykkjandi. „Við skulum kei’a allt, sem í okkar valdi stendur.“ >,Gleymdu svo ekki, að þú ert brúðurin ni111, Hermína. Þessar skepnur þarna niðri ^unu óska okkur til hamingjuu og drekka skál okkar. Þú verður að reyna að brosa th þeirra og roðna eins vel og þú getur.“ Skap Mexíkó-stúlkunnar, sem var kvik- u*t eins og kvikasilfur, breytti tárum henn- ar vonleysi í sólskinsskap. Hún rak upp UílEegjulegan hlátur. „Er þetta ekki dásam- egur brúðgumi, sem ég á!“ sagði hún og neigði sig fyrir honum. „Og ég tek mig leldur ekki illa út sem brúður — geri ég Pað, don Ruy da Luz?“ „Brúðurin er töfrandi — dásamleg og togur!“ Curzon leit á Joy Coulter og depl- aði öðru auganu hátíðlega um leið og hann hatt sinn. „Verið þið sælar, ungfrúr ^óðar! Við sjáumst aftur í veizlunni!“ ^nnn tók slagbrandinn frá hurðinni, opn- dði dyrnar og gekk út úr herberginu. . Liðsmenn Barboza reikuðu í hópum fyr- II framan bæinn og til útbygginganna. Þeir lQfðu komið með víntunnur upp úr kjöll- Ul'Unum og garðurinn var ljósum skrýdd- Ul' nieð blysum, sem vörpuðu draugalegum jarma yfir allt. Hingað og þangað lágu UoPar af þeim í grasinu og blómabeðun- Uín og drukku úr drykkjarhornum og tin- 'kurum. Þeir sungu, öskruðu, gortuðu og Vei'puðu teningum um ránsfenginn, sem Peh' höfðu náð í. Curzon gekk á meðal þeirra eins og mað- Ul’> sem gengur, þar sem hann helzt vill. _ia til tíu manna ræningjahópur lá undir Jhómutré og varpaði teningum með hávaða, ^L'asköllum og grófum blótsyrðum. Blys Vai‘paði birtu yfir hrúgu af silfurmunum, 0lllm og bikurum, sem allt var skreytt III eÓ nafni og skjaldarmerki Amors-fjöl- ^EIMILISBLAÐIÐ skyldunnar. Teningakastið snerist auðsjá- anlega um þessa dýrmætu muni. Hávaðinn rénaði til muna, þegar Cur- zon gekk inn í hópinn, og flestir af mönn- unum stóðu á fætur og þögðu nærri ískyggilega. f augum þessara þjóðvega- ræningja var Ruy da Luz maður, sem bera varð virðingu fyrir. Frægð hans hafði ekki að ástæðulausu borizt um allt landið, en virðingin þýddi einnig ótta, og menn Bar- boza voru ekki öruggir augliti til auglitis við þenna afburðamann með þúsund-doll- ara-hattinn. „Silfurmunina þarf að nota við hina miklu veizlu í kvöld,“ sagði Curzon, sem vildi nota hvert tækifæri til að láta þessa menn finna til valds síns. „Ekki einn ein- asta hlut má vanta, þegar borið hefur verið á borð. Hafið þið skilið þetta?“ „Já, já, senor,“ svöruðu tveir eða þrír af mönnunum. Undir trénu stóð kassi með gömlu, frönsku koníaki, og höfðu mennirnir opn- að hann. Curzon tók þrjár flöskur, og án þess að virða viðlits þessa þorpara, sem voru fullir aðdáunar á honum, gekk hann út úr hópnum. Hjá peningshúsunum hjá stóra hliðinu — sem þeir höfðu komið inn um — hitti hann Toomey. Frá löngu hesthúsunum heyrðist stappið í hestunum og skrjáfið í fóðrinu, sem þeir voru að éta. „Nú, hvernig hefurðu það, Sam?“ „Að undanteknum undnum fæti, skrámu á hausnum og bölvuðum hundsbitunum, — þakka þér fyrir, þá hef ég það ágætt!“ sagði múlrekinn um leið og hann lagði hækju sína til hliðar og hallaði sér upp að vagninum. „Ég hef bundið þessa fjóra reiðtygjuðu hesta okkar eins nálægt hlið- inu og frekast er hægt,“ sagði hann með hvíslandi röddu. „Þeir hafa fengið fóður og vatn, svo að þeir eru tilbúnir til að halda áfram ferðinni.“ 49

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.