Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 20

Heimilisblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 20
Barboza leit með vanþóknunarfullu augnaráði á Jay Coulter. „Viltu ekki heldur fá eitt glas af kampa- víni?“ Allt í einu bar hann bikar sinn upp að vörum hennar. „Viltu ekki drekka skál mína úr þessum hérna?“ Hún reigði höfuðið aftur á bak nægjan- lega fljótt til að koma ekki við loðnu, and- styggilegu krumluna á honum. „Nei,“ sagði hún með fáti — „nei, ég hef alls engan smekk fyrir þess konar.“ Þessi orð virtust skemmta Barboza geysilega mikið. „Ha — ha — ha — ho — hoo! Hvað veit þessi unga stúlka um smekk? Smekkur — það er nú dálítið, sem lærist með tímanum! Líttu nú á!“ Hann reigði höfuðið aftur á bak, bar bikarinn upp að vörunum og tæmdi hann í botn í einum teyg. „Ég hef líka einu sinni orðið að læra!“ sagði hann og saug úr skegginu og blés, um leið og hann setti frá sér bikarinn og þurrkaði sér um munninn á erminni. „En það getur sannarlega vel verið að þú hafir á réttu að standa, litla vina!“ sagði hann hikstandi. Hann andvarpaði þungt, og kát- ína hans breyttist skyndilega í þunglyndi hins drukkna manns. „Hvað stoðar það, þótt maður hafi vín,“ sagði hann kvart- andi, „þegar það þrátt fyrir all getur ekki gert mann glaðan í skapi?“ „Og hvers vegna, ef ég mætti spyrja, ættuð þér að vera glaður í skapi, Bar- boza?“ skaut Desafio inn í og brosti hinu hæðnislega brosi sínu. „Hver okkar hinna er það að yðar áliti ?“ Svartskeggjaði ræninginn sat kyrr og deplaði augunum, og það leit út fyrir, að hann mundi þá og þegar fara að hágráta. „Er þetta ekki himinhrópandi ranglæti!“ hélt hann áfram í hinum sama kvartandi og þunglyndislega tón. „Hingað ríð ég einn góðan veðurdag með hundrað mönnum, og hvað næ ég í — hóp af kalkúnhænum. En sama dag ríður Ruy da Luz út ein- samall og nær í tvær fallegar stúlkur. Ei’ þetta réttlæti, spyr ég?“ „Öðal don Garza Amors, sem þér hafið tekið, telst þó ekki til smámunanna," sagði Curzon og reyndi að sefa hann. „Það er nú auðveldast fyrir þig að tala, svaraði Barboza. „Þú ert ný-giftur, þú ert hamingjusamur brúðgumi — þú getur lát- ið. En ég-----“ Barboza lyfti upp hinum þunglamalegu augabrúnum sínum og starði út yfir borðið. „En hver þorir að setja sig upp á móti því, að ég verði líka hamingju- samur? Hef ég ekki rétt til þess eins og hver annar? da Luz er hvorki betri maður né meiri maður en Pio Barboza. Ég líka halda brúðkaup — já það skal ég gera!“ Hann hrópaði þessi orð sigri hrósadi út í salinn og laut ögrandi áfram, um leið og hann svipaðist um. Það var egu líkara en hann væri að leita að einhverjum, sem væri svo vogaður, að hann þyrði að mót- mæla. Eitt augnablik ríki fullkomin þögn 1 salnum — flestir voru órólegir á svipinn, eins og þeir væru hræddir við það, sem úr þessu yrði. En svo hófst allt í einu tryli' ingslegur hlátur við öll borðin. Fjöldinn allur af ruddalegum röddum tók að hrópa: „Lifi brúðguminn! — Við förum með í brúðkaupsferðina!-----Barboza ætlar að gifta sig! — Við viljum fá brúðkaup -----brúðkaup-------!“ „Já,“ öskraði Barboza, „og það núna strax á þessu kvöldi!“ „Já, hvers vegna ekki það?“ sagði ein- hver rödd úti í salnum. „Ef á presti þarf að halda, þá er hann ekki langt undan.“ „Auðvitað þurfum við á presti að halda —.“ Barboza gerði hreyfingu, sem átti að vera riddaraleg hneiging, til Jay Coulter. — „Sendið boð eftir prestinum. 1 kvöld skulu verða mikil hátíðahöld — tveir fræg' ir bræður frá þjóðvegunum, da Luz Barboza, halda brúðkaup sín!“ 56 HElMILISBLAÐlP

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.