Heimilisblaðið - 01.03.1979, Síða 4
byggingu og lífeðlisfræði snjókristallanna.
Hann komst að raun um, að snjókristall-
inn verður ekki til alfullkominn á einu vet-
fangi, heldur myndast smám saman utan
um lítinn kjarna. Hann hefur tilveru sína
sem agnarsmár dropi í skýi, sem frýs og
verður að þéttum hlut. „Þegar þrír slíkir
dropar hanga saman,“ skrifaði Bentley,
„getur myndast sexkantaður kristall," og
„stórir kristallar verða til á kostnað hinna
smáu.“
Myndir sínar notaði Bentley til að rann-
saka og kortleggja snjókristallana með
ýtrustu varfærni, rétt eins og hann væri
að svipast um á nýfundnum meginlönd-
um. Hann uppgötvaði fjallshryggi, sem
hann lýsti sem „kúptum smálinsum, sem
umbreyta Ijósinu, svo að það virðist ekki
eins skært,“ og fellingar uppgötvaði hann
líka, sem „einkennast af því, að frum-
þættir krisallsins hafa aðeins náð að sam-
lagazt að vissu marki, þannig að myndast
sívöl linsa, sem er íhvolf, en breytir ljós-
inu líka samsvarandi." Hann kortlagði
einnig það tómarúm, sem „venjulega er
tómt, en getur stundum verið fyllt vatni.
Veggir þess eru greinilega myndaðir sam-
hliða með jöðrum kristallsins."
Eftir lát foreldranna bjó Bentley áfram
á sama stað ásamt Charles bróður sínum.
Hann kvæntist aldrei, en hafði eigið að-
setur í þrem herbergjum þéttskipuðum
hvers kynst vísindatækjum þama á gamla
garðinum, þar sem Charles bróðir hans
bjó í afganginum af húsinu með konu sinni
og börnum.
Fyrstu vísindalegu viðurkenninguna
hlaut Bentley árið 1898, þegar hann fékk
birta grein um ljósmyndun sína í vísinda-
riti nokkru ásamt Perkins prófessor við
háskólann í Vennont. Síðar birti hann
fleiri greinar, og frá og með 1901 birti
hann að staðaldri efni í vísindalegu veð-
urfræðiriti. Árið 1907 gaf hann út fyrstu
bók sína, „Water Wonders“ (Vatnsundí'-
in). 1 henni gaf að líta á mydum og 1
lesmáli lýsingu á frostblómstrunum og öll*
um þeim margbreytilegu formum sem
frostið tekur upp á að mynda, jafnt 1
hrími, ísingu, slyddu og hagli.
Eftir að þessi bók kom út, sóttu öll veð-
urflæðileg rit myndefni sitt í safn Bent-
leys. Veðurfræðistofnun Bandaríkjanna
keypt myndir hans í miklu magni, alþýö-
leg vísindarit endurbirti þær, og fyrirles-
arar notuðust ríkulega við þær í skýringa-
flutningi sínum. Brátt kom einnig að þvl>
að hin fallegu form snjókristallanna vol’u
notuð sem fyrirmynd skrauts á skartgnp1
og hverskyns nytjahluti: glös, postulín og
vefnað. Bentley var kjörinn félagi í banda-
rískum samtökum um vísindalegar fraxn-
farir, og William Humphreys prófessor vlí'1
Veðurfræðistofnunina bandarísku val’^
náinn vinur hans.
Mikilsverðasta rit sitt, „Snow Crystals
(Snjókristalla) sendi Bentley frá sér árið
1931. Humphrey hafði reyndar skrifa®
mestallan textann, en Bentley lagt til all'
ar myndirnar, og þessu höfðu þeir unnið
að saman um margra ára skeið. 1 bókin111
eru myndir af 2000 frægustu snjókristalln'
gerðum Bentleys, og auk þess mikro-fH111'
ur af hrími og svonefndum „frostrósum »
sem myndast þegar ís tekur að þiðna „mn'
anfrá“.
Kvöld eitt síðla í desember 1931 gekic
Bentley ofan frá skúrnum sínum í brekk'
unni, þar sem hann hafði unnið klukkn'
stundum saman í hráslagakulda án tillits
til heilsu sinnar, eins og hann var reynd'
ar vanur. En nú fann hann fyrir lasleika
og fór í rúmið með háan sótthita. Tveim
dögum fyrir jól klæddist hann stutta stund
til þess að sjá jólatréð inni hjá CharleS
bróður sínum, en að morgni var hann láf'
inn.
Það var mikil snjókoma þann dag.
Japaski lífeðlisfræingurinn Ukichir0
H E I M I L I S B L A Ð 1 Ð
40