Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1982, Qupperneq 3

Heimilisblaðið - 01.01.1982, Qupperneq 3
LÍTUM VIÐ í LUXEMBURG Dæmigerðar miSaldir og sjálf tuttugasta öldin blandast fur'ðanlega í þessu litla og frið- sæla ríki. EFTIR OSCAR SCHISGALL Stórhertogadæmið Lúxembúrg kemur fyrir augu og eyru eins og þversögn, frá hvaða sjónarmiði sem á er litið. Dvergríki þetta, 2586 ferkílómetrar að stærð, er svo miðaldalegt í byggingarstíl, lögum og ferðavenjum, að það virðist álíka fjarlægt staðreyndum nútímans og ævintýrin í bók- unum. Samt sem áður er það vaxandi ný- tízku ríki, sjöundi mesti stálframleiðandi Evrópu og aðalaðsetursstaður Kola- og stálsamsteypunnar. I Lúxembúrg eru að- eins 330,000 íbúar, en engu að síður er það aðili að Efnahagsbandalaginu, Sameinuðu bjóðunum og Atlantshafsbandalaginu. Að vísu eru ekki nema 115,000 útvaii)stæki í landinu, en útvarpsstöðin, Radio Luxem- bourg — sú öflugasta í Evrópu — sendir frétta- og skemmtiefni til u. þ. b. 40 millj- °n manna í nágrannalöndunum. Meginþversögnin er e. t. v. sú, að þetta friðsæla fyrirbæri, með miðaldaköstulum, skógivöxnum klettum, bylgjandi ökrum og ^mekrur á árbökkunum, skuli yfirleittvera til, eftir allt umrótið í nútímanum. Leik- fangaland þetta, sem liggur í krika milli Þýzkalands, Frakklands og Belgíu, ætti að öllu eðlilegu að hafa orðið sterkum ná- grönnum sínum að bráð fyrir löngu. Reyndin er líka sú, að landið hefur hvað eftir annað orðið fyrir því að vera troðið undir tánum af óvinahersveitum einræðis- herra, allt frá Cæsar til Hitlers. Engu að síður gat Lúxembúrg minnzt þess árið 1963 að hafa verið sjálfstætt ríki í 1000 ár, þó svo að það hafi ekki yfir einum hernaðar- mætti að ráða sem nefnzt geti því nafni. Að undanskildu fimm ára hemámi Þjóð- verja í heimsstyrjöldinni síðari hefur stjómarformið í tíð Charlottu stórhertoga- ynju og Jeans sonar hennar haldizt óbreytt í 47 ár (greinin er skrifuð árið 1967). Mitt í allri spennu nútímans er Lúxembúrg eins og eyja friðar og draumkenndrar feg- urðar, tákn seiglu og stolts, sem birtist reyndar í einkunnarorðum hertogadæmis- ins: „Mir Wölle Bleiw Wat Mir Sin“ —

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.