Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1982, Síða 7

Heimilisblaðið - 01.01.1982, Síða 7
námssvæðunum í Evrópu í mótmælaskyni við innrásina og herskylduna. Verkfallið var miskunnarlaust brotið á bak aftur, og i’úmlega 27 þúsund manns — næstum tí- undi hver af íbúunum — var settur í þrælabúðir, fangelsi eða fluttur burt nauð- ungarflutningi. Það varð svo eins konar hápunktur þess- arar stríðsreynslu, að undir lok styrjald- arinnar varð nyrzti hluti landsins vett- Vangur einna blóðugustu átakanna sem áttu sér stað í allri styi’jöldinni — Ard- enna-bardaganna í desember 1944. Þegar þeim átökum lauk höfðu 10,000 Þjóðverj- ar og 9.000 Bandaríkjamenn fundið leg í lúxembúrskri mold. Ég stóð við hlið Lúxembúrgara og horfði yfir hvítu krossa- breiðuna í bandaríska kirkjugarðinum í Hamm. „Þetta eru sterkustu böndin sem binda okkur við Bandaríkjamenn,“ sagði hann við mig. „Þetta voru mennimir, sem káfu okkur frelsið aftur. Því skal aldrei verða gleymt.“ Árið 1948 afnam Lúxembúrg hlutleysis- ákvæðið úr lögum sínum og hefur síðan Verið aðili að Atlantshafsbandalaginu. Viðfelldin þjóö. Stundum geta íbúar þessa lands virzt vera dálítið bamalegir. Þeir tilheyra þó þeirri þjóð, sem er einna bezt menntuð og siðfáguð almennt. Svo er fyrir að þakka legu landsinsn á kross- götum í álfunni, að í rauninni er þjóðin tal- andi á þrjár tungur. Franska er hið opin- bera tungumál, blaða- og kirkjumálið er venjulega þýzkt, en hið daglega tungumál er „letzeburgesch“ — miðþýzk mállýzka, yfrið krydduð frönsku — sem er aðeins Lúxembúrgurum skiljanleg. Jafnvel í Sviss er málblöndunin ekki slík. Lúx- embúrg er að líkindum eina landið þar sem blöðin bii*ta greinar á frönsku og þýzku hlið við hlið — með nokkrum auglýsingum a „letzeburgesch" inn á milli. Einnig í skólunum er um fleiri en eitt tungumál að ræða. Allar námsgreinar eru bæði kenndar á frönsku og þýzku. 1 efri bekkjum er kennd enska að auki. Það er ekkert undarlegt, að fyrsti „Evr- ópu-skólinn“ skyldi vera opnaður einmitt í Lúxembúrg, árið 1957, fyrir börn starfs- fólks Kola- og stálsamsteypunnar sem komin voru erlendis frá. Börnin læra fög sín á einhverju af þeim fjórum tungumál- um, sem notuð eru við skólann: þýzku, frönsku, ítölsku eða hollenzku; en jafn- framt læra þau a. m. k. eitt mál að auki, og eru uppfrædd í ýmsum fögum á því tungumáli einvörðungu. í Evrópu-skólan- um eru nú 1450 nemendur, og settir hafa verið á stofn fjórir samsvarandi skólar í Belgíu, Italíu, Þýzkalandi og Hollandi. Enda þótt mikil rækt hafi verið lögð við menntun í Lúxembúrg, hefur aldrei starf- að þar háskóli. Til þess er landið ekki nógu stórt. Sem betur fer, er ekki langt að sækja til að komast í góðar menntastofnanir, því að ekki er nema nokkurra klukkustunda ferð til Bonn, Heidelberg, Parísar, Nancy, Louvain, Liége, Briisselles, þannig að há- skólaleysið hefur aldrei verið til mikils baga. Heimurinn í dag þarfnast staða eins og þessa hertogadæmis — þó ekki sé til ann- ars en að geta sannfærzt um það, að mögu- legt er að finna friðsamlegan reit á jarð- rí'ki. Jón Ólafsson, skáld og ritstjóri, kvað eft- ir heimkomu sína frá Ameríku: Hálfan fór ég hnött í kríng, heim er kominn aftur. Hafði með mér þai’flegt þing: það var góður kjaftur. HEIMILISBLAÐIÐ 7

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.