Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1982, Side 18

Heimilisblaðið - 01.01.1982, Side 18
í flokki hinna fyrirlitnu kristnu manna? Já — ég fyrirlít þá ekki, Antonius, en hið kyrrláta líf þeirra, samsvarar alls ekki því lífi, sem þú ert fæddur til. Minnstu þess, að þér rennur fornrómverskt blóð í æðum. Forfeður þínir voru hermenn. Faðir þinn dó hetjudauða með vopn í höndum. Og nú vilt þú, sonur hans, víkja af þeim vegi, sem hann vísaði þér á — veginum til sæmd- ar og fi*ægðar. Nei, vinur minn, það má ekki verða. Og heyrðu svo þar á ofan um- mæli föður rníns um þig. Þú veizt, að hann hefur þig í hárri virðingu og hann vill gjarna sýna þér vott hylli sinnar. Þess vegna hefur hann fastráðið að skipa þig til landstjóra á Sýrlandi í stað Cestíusar Gallusar. Antonius minn, geturðu vísað slíku kostaboði frá þér? Keppir andi þinn enn hærra? Hugsaðu út í, hvað þér býðst? Þú verður konungi voldugri. Með vopnum í höndum getur þú venidað ríkið gegn uppreistarmönnum og móti villiþjóðunum á landamærunum. Og þú hefur vald til að berjast fyrir hugsjón þinni — friði og réttlæti i landinu. Göfugi vinur minn! Geturðu óskað þér annars meira? Nú felldi Antonius talið. Rut var kropin á kné fyrir fi*aman hann. Nú hóf hún upp augun og leit á hann með viðkvæmasta kærleika og sagði: — Þú ert þá kominn til að kveðja mig? Þótt hún hefði ásett sér að láta ekki á neinum veikleika bera, þá komu þessi orð þó titrandi fram af vörum hennar. Hann hristi aðeins höfuðið, en dró Iiana að sér um leið, og þá mælti hún: — 0, Antonius, elskaði vinur. Manstu ekki eftir kvöldinu fyrir utan Jerúsalem. Þegar þú lýstir fyrir mér hugsjón lífs þíns með mikilli hrifningu — það var heiður, fi*ægð og ódauðleiki. Nú liggur uppfylling æskudrauma þinna fyrir framan þig. Og þú skalt vita, að ást mín til þín er nógu sterk til þess, að ég geti sagt: Taktu á móti tilboði keisara þíns. Farðu til Sýr- lands, vertu mikill, vertu voldugur, og frægur. En — Antonius! einmitt af því að ég elska þig svo óumræðilega heitt og elska þína ódauðlegu sál umfram allt, þá hlýt ég að segja: Gerðu það ekki! Og þú skilur mig — því hvað stoðaði þig það, þótt þú öðlaðist allt þetta, já, þótt þú svo ynnir allan heiminn, en týndir sál þinni. Heyr þessi orð af vörum hennar, sem daglega hefur beðið íyrir þér síðan hún lærði að biðja. Það er að vísu mikið, að eiga hylli keisarans, en það er þó þúsund sinnurn meira að eiga hylli hins himneska konungs. Rómaveldi þarf að vísu á þínum æsku- kröftum að halda. En til hvers er þeim beitt? Til hvers liefur Róm beitt valdi sínu? Eingöngu sjálfri sér til dýrðar, en fjölda manna til eymdar og ógæfú. Og hvað er heiður og frægð og það, sem kall- ast ódauðleiki? — Tómur hugarburður, svipur einn — tál eitt. Og girnist sál þín þetta allt, þá getur þér hlotnast það af Guði. Og það, sem hann gefur, er ekkert tál, heldur sæll raunveruleiki. Legg því fram krafta þína og hæfileika, vinur minn, og þér mun ávinnast, það sem er ódauð- leikanum meira — það er: eilíft líf í Guði. 0, Antonius, mig hefur lika dreymt mína drauma; en þeir tóku hærra en til þess, sem heimurinn getur gefið. Og einn af þeim draumum, og fegurstur þeirra allra var það, að ég fengi að sjá þig í tölu her- manna Jesú Krists, sem vildu berjast —- ekki fyrir Róm eða með, heldur móti henni — í her hins lifanda Guðs. Og er hún nú felldi talið, leit Antonius á hana og úr augum hans skein óumræði- leg hamingja, og hann mælti: — Rut mín, var þessi draumur nú líka fegurstur þeii*ra allra? Hún roðnaði, huldi ásjónu sína við brjóst hans og hvíslaði: — Nei, Antonius, en þú veizt það svo vel — fegurstur var þó sá draumurinn af 18 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.