Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1982, Qupperneq 20

Heimilisblaðið - 01.01.1982, Qupperneq 20
VITRÍ KRUMMI ÆVINTÝRI Einu sinni fyrir ótal mörgum öldum var uppi konungur, sem átti undursamlegan hrafn, er gat talað eins og maður. Og svo var hann eftir því vitur, að konungur ráðg- aðist við hann í áríðandi málum. Til konungs komu sendimenn úr öllum heimsins álfum, frá konungum og keisur- um; buðu þeir konungi of fjár fyrir þenn- an vitra hrafn. En konungur vildi ekki selja, hvað sem í boði var. Þá var reynt að múta drengnum, sem átti að gæta hrafnsins. Sá hét Emil. En Emil elskaði og virti húsbónda sinn og konung. Konungur hafði alltaf veríð góður við hann og allt af borið hið fyllsta traust til hans. Þess vegna vildi Emil heldur deyja en reynast konungi sínum ótrúr. Konungur átti dóttur, sem Irena hét. Fögur var hún og yndisleg, eins og bjart- ur sumardagur. Hún hafði ást á Emil og hann á henni, en konungur vildi ekki heyra á það minnst, að hann gifti dóttur sína þeim manni, sem ekki væri nema þjónn við hirðina. Stjúpdóttir konungs, Emilía, lagði líka ástarhug á Emil, en hataði Irenu, af því að hún vissi, að hann hafði meiri mætur á henni. Hún tók að rægja Irenu við hann, en Emil vísaði henni frá sér með fyrirlitn- ingu, lagði hún þá heiftarhatur á Emil líka. Einu sinni kom nágrannakonungur til konungs og hóf bónorð til Irenu dóttur hans og bauð honum jafnframt fádæma mikið fé fyrir vitra krumma. En konung- ur vildi ekki neyða dóttur sína til að gift- ast manni, sem hún hafði engar mætur á. Nágrannakonungurinn varð fokvondur og sagði við konung: „Hvernig getið þér nú verið viss um að unglingur sá, sem hrafnsins gætir, geti ekki einhvern tíma freistast til að selja hann og stinga svo andvirðinu í sinn eigin vasa?“ „Hann Emil!“ hrópaði konungur og hló hátt. „Nei, hann er gulltrúr. Ég treysti honum alveg eins og sjálfum mér.“ „Ef ég nú byði honum jafnmikið og ég hef boðið yður í hrafninn, þá mundi hann varla standast það,“ sagði nági'annakon- ungurinn háðslega. „Jú, það er ég viss um að Emil mundi gera,“ mælti konungur. „Svo er ég viss um trúmennsku hans, að ég sel yður hrafn- inn í hendur og lofa yður hönd dóttur minnar, ef yður tekst að freista Emils.“ Þá Ijómuðu augu konungs af fögnuði. Hann sárlangaði til að eiga hrafninn og þá ekki síður að eignast Irenu að drottn- ingu. Stjúpdóttir konungs, Emilía, hafði stað- ið á hleri og hlustað á samræður kon- unganna. Já, ef Emil stæðist ekki freist- inguna, þá væri hann búinn að fá sín mak- leg málagjöld. Þá neyddist stjúpsystir hennar til að giftast nágrannakonungin- um og þá yrði Emil rekinn úr landi með skömm. Hún reyndi að hafa tal af nágranna- konunginum og það tókst henni. „Ef þér viljið hafa lánið með yður, þá dugar ekki það eitt, að þér bjóðið honurn peninga. Ég held, að hann léti ekki hrafn- inn af hendi við yður, þó að í boði væri allt það gull, sem til er í heiminum. En hann ann stjúpsystur minni af öllum huga og ef þér lofið honum að sjá um, að hann 20 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.