Heimir - 01.11.1910, Side 6
54
HEIMIR
dóminum hafa Slavneskar þjóöir aldreiátt, en Greifann Tolstoy.
Og ókomnum öldum gleymist það ekki, og þærkrefja þá stofnuu
fulls reikningsskapar við minninguna hans, er telur sig undir
nafni Krists, en hlaðið hefir vfir hann ofsóknum Og svívirðingum
lifandi og dauðann.----(Framh. æfiágrip í n esta blaði)
R. P.
Únítaratrúin
Fyrirlestur fluttnr ií kyrkjuj'ingi íslenzkru línítara í Vesturheiini
í júní, 1910, af G. Arnasyni.
(Framhald)
í þessu mjög stutta og ófullkomna yflrliti yfir únítarísku
stefnuna á vissum tíinabilum, hefi ég leitast við að benda á þ<ð
sem mér virðist hafa verið hinn rauði þráður.er renn'ur í gegnum
allar stigbreytingar og tengir skoðanir, sem oft hafa verið næsta
ólíkar, eftir því hverjar staölegar og títnabilslegar orsakir þær
hafa haft, í eina vaxandi heild. Það er í raun réttri þýðingar-
lítið, nema að maður sé að kynna sér hreyfinguna eingöngu frá
sögulegu sjónarmiði, að fara nákvæmar út í, hvaða skoðanir
únítarar hafi haft á hverjunt tírna viðvíkjandi hverju atriöi.sem
á einhvern hátt snertir trúarbrögðin, eða hver hafi
verið afstaða þeirra gagnvart hinu eða þessu í kenningum
kyrkjunnar. Það sein mest er um vert fyrir oss nú, er að sjá,
hvaða skoðanir það eru, sem nú eru alment viðteknar af únítör-
um, og sem eðlilega verður að skoða seni afleiðingar af hinni
ráðandi stefnu í liðinni tíð að nokkru leyti.
Þeir sem að álíta nauðsynlegt að trúarskoðanir allra þeirra,
er líka stefnu hafa, séu dregnar saman í trúarjátningu eða eitt-
hvað þesskonar, er sé álitið að hafa bindand; sannleik að geyrna,
mundu vilja segja, að það sé ómögulegt að vita hvaða skoðanir
únítarar hafi, vegna þess að þær séu hvergi settar fram sem
skoðanir,er þeir,sem nafnið bera,séu á nokkurn hátt skuldbundnir