Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Side 26

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Side 26
116 ísland fullvalda ríki IÐUNN talað og lesið. Og bæði fyr en það og síðar sá ég á hverri vetrárvertíð þann grúa af frönskum fiskiduggum, að stundum varð engri tölu á komið, vera að veiðum uppi undir skerjum á Eyrarbakka, en vissi til þess að annaðhvort komust landsmenn ekki á sjóinn fyrir gæftaleysi eða þeir urðu að forðast þau mið sem útlendingarnir fjöl- menntu mest á og fiskur því var mestur fyrir á, til þess að verða ekki fyrir vogeslum þessum. Ég heyrði talað um að þeir brytu lög á landsmönnum. Hvorugt af þessu var til þess fallið að skapa hjá mér þá oftrú á veldi Dana, að hún væri ólæknandi alla æfi. Ég vissi það snemma að Danir voru miklu meiri menningarþjóð en Islending- ar og að til þeirra sóttu íslendingar þann lærdóm sem ekki var fáanlegur hér. En áður en ég kæmist svo mikið niður í dönsku máli, að ég hefði not af dönskum bókum, las ég, næst á eftir Njálssögu og nokkrum öðr- um fornsögum, íslenzk rit sem fluttu sífellt á öðru leit- inu ádeilur á danskar stjórnir og afskifti þeirra af Is- landi og málum þess. Heima hjá mér voru til alþingis- tíðindin frá upphafi, og um eitt árabil innan fermingar- aldurs las ég mikið í þeim, helzt í árgöngunum 1859 og þar á eftir, en þá hafði þingið árlega til meðferðar stjórnarbótarmálið, sem þá var nefnt svo. Það gefur að skilja að þessi lestur hafi ekki skilið eftir hjá mér sjálfstæðan eða djúpsettan skilning á því máli eða öðr- um málum, sem fyrir komu; en allt um það þykir mér þetta nú hafa verið betur lesið en ólesið. Ég sá á ári hverju Ný Félagsrit og las í þeim eða heyrði lesið. Það var öðru nær en að fram hjá mér færi að þá var uppi íslendingur, sem hugsaði og talaði svo djarft um framtíð lands og þjóðar, að suma menn sundlaði, en forsmáði hinsvegar að afla sér lýðhylli með því að telja mönnum trú um að Islendingum einum allra þjóða væru

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.