Kirkjuritið - 01.03.1935, Blaðsíða 21

Kirkjuritið - 01.03.1935, Blaðsíða 21
Kirkjnritifi. Oxfordhreyfingin nýja. 109 til þess að gefa góðviljuðum mönnum nýja von og nýja djörfung og láta þeim fjölga. Því að heiminum verður ekki brevtt til batnaðar með vélgengu þjóðskipulagi ein- vörðungu, lieldur verður fvrst og fremst að bæta menn- ina, sem vélinni eiga að stjórna“. Or. Selbie hefir jafnan fylgst vel með starfi Oxford- lireyfingarinnar, enda þótt hann telji sig ekki lil henn- ar. Hann kveður hana hafa tekið talsverðum breyting- um með líðandi árum og leiki henni nú niiklu meir liugur á að rétta kirkjunni hönd til samvinnu heldur en áður. Raunar liætti henni enn nokkuð til að líta á þá sem andstæðinga, er ekki vilji samþýðast sér og hjálp- i'æðið bundið við sig. En kostirnir yfirgnæfi gallana. Hún muni vaxa frá ýmsum þeirra. Hún hefir þegar unnið afreksverk bæði trúarlega og siðferðilega - gjör- breytt til batnaðar lífi fjölda manna nm allan beim. Og „af ávöxtunnm sknluð þér þekkja þá“. Hér hefir heilagur andi verið að verki. Enginn vafi er á því, að vér íslendingar getum lærl mikið af þessari hreyfingu. Þótt það muni að vísu trauðla eiga við þjóðareðli vort að vera líðtalaðir á dýpstu trúartilfinningar vorar og reynslu í áhevrn niargra, þá er það áreiðanlegt, að trúnaðarviðræður um eilífðarmálin, þar sem vinur segir vin allan hug, eða skriftir í nútímamerkingu nnmu revnast oss ' ollar. Það er jafnvel ekki óliklegt, að kristnin hér á landi muni á komandi árum breiðast meir út með þjóðinni um þær æðar en verið hefir. Þá þurfa siðgæðishug- sjónirnar, einlægni, hreinleiki, óeigingirni og kærleiki uð verða oss sá veruleiki, er blasi við oss bæði í einka- lífi og félagslífi, og kenning Ivrists þannig boðuð í verki. Hljóðar tilbeiðslustundir daglega mundu falla eins og frjóvgandi dögg yfir þurra og skrælnaða jörð, því að margir af oss hafa „yfirgefið uppsprettu hins lifandi vatns til þess að grafa brunna, brunna með sprungum, sem ekki halda vatni“, eins og Jeremia komst

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.