Kirkjuritið - 01.03.1935, Síða 36
124
Ólafur Briem:
Kirkjuritið.
segir. I æfisögu skáldsins, sem prentuð er framan við 2. deild
Ljóðab., segir svo á bls. XXXIII: ,,En eftir að hann sá að sálm-
um hans var breytt að honum fornspurðum, og stundum á
bann hátt, sem hann vildi sízt kosið hafa, þá hlífði hann ekki
neinu í kvæðum sinum, og spannst þar út af ein hin snarpasta
rimma, sem verið hefir á íslandi". Og á næstu blaðsíðu segir
Jón Sigurðsson ennfremur: „En ekki er það kynlegt þó honum
rynni til rifja, að sjá engan annan árangur margra ára iðju
sinnar enn nokkur sálmvers, snúin á ýmsa vegu af öðrum móti
vilja hans og vitund“.
Jón Sigurðsson hefir líklega ekki órað fyrir þvi, að þessum
breytingum á sálmum jijóðskáldsins yrði haldið áfram í aldir
fram.
Ég hefi hér að framan drepið á nokkur atriði í vörn hr.
Gísla Sveinssonar. Býst ég við, að lesendur sjái nú, að mistök-
in á sálmaútgáfu þessari eru ekki svo litil, sem sýslumaðurinn
vill vera láta. Vænti ég þess, að hvorki verði sálmabók, né nokk-
ur önnur bók í landi voru, gefin út með þeim misfellum, sem
hér er um að ræða. Og þá fyrst er tilganginum náð, sem fólg-
inn var í samtökunum gegn þessari bók.
Hvorki eru viturlegar né af góðum toga spunnar þær raddir,
sem heyrzt hafa, og dálítið er alið á í ritgerð herra Gísla
Sveinssonar, að j)að hafi verið persónulegur eða pólitískur
fjandskapur, eða fjandskapur við kirkju og kristindóm, sem
var orsök þessarar deilu, eða réði úrslitum i henni. Því munu
engir trúa, sem nokkuð þekkja til þess fólks, sem hér á hlut
að máli.
Að lokum þakka ég Kirkjuritinu, að það góðfúslega hefir
veitt mér rúm fyrir þessar athugasemdir.
Jón Magnússon.
ATHUGASEMD.
Hr. Gísli Sveinsson sýslumaður getur þess í grein, sem hann
skrifar í síðasta hefti Kirkjuritsins, að ég hafi kært útgáfu-
nefnd Viðbætis við sálmabók fyrir breytingar á sálmum eftir
afa minn, Valdimar Briem. Segir sýslumaðurinn, að sú eina
breyting sem hér geti verið um að ræða sé, að nefndin hafi á
sinum stað sett „elskar“ í stað „einkum“. Þetta er ekki rétt.
í Viðbætinum eru fimm afbakanir, sem ég hefi tekið eftir.
Meira að segja er rangt með farið i næstu línu á eftir hending-