Kirkjuritið - 01.03.1935, Síða 40
128
ERLENDAR FRÉTTIR.
Kirkjuritií).
Frá Finnlandi.
L. J. Ingman erkibiskup í Finnlandi aiulaðist 25. október s.l.
(iG ára að aldri. Hann var kjörinn erkibiskup árið 1930, og var
þá prófessor í guðfræði við háskólann í Helsingfors. Ingman
var glæsimenni og skörungur og gætti áhrifa hans bæði í kirkju-
málum og landsmálum. Hann var þingmaður um langt skeið og
átti hvað eftir annað sæti í ráðuneyti Finna, ýmist sem for-
sætisráðherra eða kensluinálaráðherra. Ingman var ættaður úr
sömu sveit og Söderblom erkibiskup Svia, Suðurdölum í Hels-
ingjalandi. Svipaði þessum tveim kirkjuhöfðingjum að nokkru
saman um glæsimensku, áhrifavald og vinsældir.
Eftirmaður Ingmans á erkibiskupsstóli var Erkld Knila skip-
aður rétt eftir síðustu áramót. Hann er fæddur 1867, var dócent
i Ilelsingfors 1911—1925, en 1925 kjörinn biskup i Viborg.
Eftirmaður Jaako Gummerus l)iskups i Tammerfors var
.4. E. Lehtonen skipaður á liðnu ári. Hann var áður dócent í
Helsingfors.
Finnland skiftist i fimm biskupsdæmi, og situr erkibiskup-
inn i Ábo.
Félagið „Dansk-islandsk Kirkesag“.
Formaður þess, í stað Ostenfelds biskups, hefir nú verið kos-
inn dr. theol. Michael Neiiendam prófastur, sem mörgum er að
góðu kunnur frá heimsókn hans til lands vors fyrir nokkrum
árum.
Bálstofur í Danmörku.
Bálstofum fjölgar óðum í Danmörku síðustu árin, og eru þær
nú alls orðnar 14, en þó ráðgjört að bæta við fleirum á næstu
árum. Talið er, að af hverjum hundrað likum séu nú 7,6 hrend
i Danmörku og að hærri séu aðeins tvö ríki i Norðurálfu,
Þýskaland með 8 og Sviss með 12 al' hundraði.
Hingað til hafa lík frá íslandi verið flutt til Danmerkur til
brenslu, og mun svo verða, unz aðstæður leyfa að fyrirhuguð
hálstofa komist hér upp. Er rétt, að mönnum sé hér á landi
sem annarsstaðar gefinn kostur á að velja þá útför er
þeim geðjast bezt að. Helgisiðabókin nýja gefur leiðbeiningar
um það, hvernig útfararathöfn i kirkju eða kapellu fari fram,
þegar lík er brent.