Kirkjuritið - 01.06.1936, Blaðsíða 12

Kirkjuritið - 01.06.1936, Blaðsíða 12
226 Benjamín Kristjánsson: Kirkjuritið. sterkar að orði i formála að einni af bókum sínnm: „Röksemdaleiðsla þessara fyrirlestra", segir liann, „linígur að því, að sýna fram á, að efnisheimurinn er ekki liinn raunverulegi heimur, heldur aðeins ófullkom- in skuggamynd lians. Ilinn raunverulegi heimur er hinn andlegi heimur gildanna, en þessi gildi eru reyndar í hinzta skilningi ekkerl annað en opinherun hins æðsta andlega veruleika, sem á trúarinnar máli nefnist Guð“. Þannig mætti halda áfram, ef tími leyfði, að sýna fram á livernig' fjölda margir frægustu vísindamenn nútím- ans eru óðum að liverfa inn á þessar liugsunarleiðir, enda þótt þeir hafi ef til vill liafið rannsóknir sínar undir þröngu sjónarhorni raunvísindanna. En þetta sannar aðeins, að margir gagnvegir geta legið til sann- leikans og það er ef lil vill nauðsvnlegt að fara þá alla, lil þess að leiða hann fullkomlega i ljós. Hér hefir raun- vísindamaðurinn tekið aðra leið, en trúvísindamaður- inn, er kemst þó mjög að hinni sömu niðurstöðu. f II. Þetta, sem nú hefir verið sagt, getur auðveldlega skýrt það, hvernig líta má á skynsamlegan hátt á þróun guðs- hugmijndarinnar eða hina vaxandi opinherun. Sumir álykta á þá leið, að ef sýnt verði fram á það, að guðshugmynd nútimans hafi þróast frá harnalegum liug- myndum fortíðarinnar, þá sé hún auðvitað ekkert ann- að en sama vitleysan, einungis í fínni útgáfu. En þetta er alveg skakt sjónarmið. Vér þurfum alls ekki að telja, að hugmyndir fornaldarinnar, jafnvel þær, sem sáu guði í stokkum og steinum eða dýrum, eða sáu guð í geislum sólarinnar og liinum leiftrandi stjörnumerkjum geims- ins, hafi verið heinlínis rangar. Því síður, er menn sáu guði i konungum eða miklum trúarbragðahöfundum. Ekkert af þessu er beinlínis rangt. Enn í dag sjáum vér guð í öllu þessu. En sjónarmiðið cr bara takmarkað. Þetta er opinberun á lágu stigi. Það er eins og skynjun

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.