Kirkjuritið - 01.06.1936, Blaðsíða 16

Kirkjuritið - 01.06.1936, Blaðsíða 16
Benjamín Kristjánsson: Kirkjuritið. 230 og þögn liimins og jarðar rynnu saman og' leyndardóm- ur jarðarinnar yrði eilt með leyndardómi stjarnanna . . Aloysha stóð kyrr, starði í kringum sig og skvndilega fleygði liann sér flötum á jörðina. Hann vissi ekki, hvers- vegna hann faðmaði liana. Hann gal ekki með neinu móti gert sér grein fyrir því, livers vegna hann þráði svo óstjórnlega að kyssa liana .... En hann kysti liana og grét með ekka og vökvaði liana tárum sínum, játaði henni á ástríðuþrunginn liátt ást sína og hét að elska liana um eilífð............ Hversvegna g'rét hann? í unaði sinum grét liann jafn- vel yfir þessum stjörnum, sem tindruðu til hans utan úr hyldjúpum geimsins, og liann hlvgðaðist sín ekki vfir þessari lnigljómun. Það virtust liggja þræðir frá þessum ótcljandi veröldum Guðs, er hundu sál hans við þær, og sál hans hrærðist að insta grunni, vegna sambandsins við þær. Hann þráði að fyrirgefa öllum alt og öðlast fyrirgefning. Ekki aðeins fvrir sjálfan sig, heldur fyrir alla menn, l'yrir alt og alla. „Og þannig munu aðrir hiðja l'yrir mér“, hljómaði í sál hans. En með hverju augnahliki, sem leið, fann liann glöggar og glöggaI•, næstum því eins og með áþreifanlegri tilfinn- ing, hvernig eittlivað örugt og óhifandi var að setjast að í sál hans, líkt og sjálf himinhvelfingin hnigi ofan í vit- und hans. Og það var eins og voldug hugmynd hefði sezt að völdum í sál hans um alla æfi og að eilífu og luin lyfti honum í hæðirnar. Sem þrekvana urigmenni hafði hann hnigið niður á jörðina, en liann reis á fætur sem hugdjörf hetja ....... Aldrei á æfi sinni gat Aly- osha gleymt þessu augnahliki. Síðar meir var hann ávalt vanur að segja: „Á þeirri stundu lieimsótti einhver sál mína“. Frá svipuðu atviki segir enski ritliöfundurinn J. Mid- dleton Murry í bók sinni: God. Þegar atvikið kom fyrir hann, var liann aþeisli og úrvinda á sál og líkama eflh’ missi merkilegrar og ástríkrar konu. Honum virtist

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.