Kirkjuritið - 01.03.1937, Blaðsíða 4

Kirkjuritið - 01.03.1937, Blaðsíða 4
Kirk.juritið. SYNGIÐ NÝJAN SÖNG. Syngið Drotni nýjan söng! Ilvað eftir annað heyrist þessi áskorun í hvatningar- orðum Gamla testamentisins, bæði af vörum sálma- skáldsins og spámannsins. Og orðin endurhljóma í há- tíðlegu máli Opinberunarbókarinnar. Syngið Drotni nýjan söng! Er nokkurt orð til, sein meiri birta er yfir en þessu? Frá alda öðli liefir söngurinn lyft mönnunum, söng- ur og hljóðfærasláttur verið samfara öllum gleðiathöfn- um. Söngur og dans, hrynjandi í hljómum og hreyfing- um er sennilega frumstæðasta listartjáning mannsins, og er miklu eldri en svo, að það verði rakið til upp- sprettu sinnar. í grárri steinöld hafa þau, forfaðir okkar og formóðir, sungið, látið röddina klingja hæði i friði og stríði. En smámsaman leitar svo listin hærri og liærri verk- efna, hærri og liærri þarfa. Og loksins hljómar orðið: Syngið Drotni nýjan söng! Sálmasöngur og sálmakveðskapur hefir fylgt krist- inni kirkju frá upphafi. Páll postuli segir í fyrra Kor- intubréfi, að þegar þeir koma saman á safnaðarsam- komur, þá komi hver með sitt, einn liafi sálm, annar kenningu, þriðji opinberun o. s. frv. Og í Kólossubréfinu segir hann, að þeir eigi að fræða hvern annan með sálmum, lofsöngvum og andlegum ljóðum, og syngja Guði sætlega lof í hjörtum sínum. Vér eigum líka í Nýja testamentinu dæmi frumkristilegra sálma, svo sem eins og i fvrstu kapítulum Lúkasarguðspjalls, lofsöng

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.