Kirkjuritið - 01.03.1937, Qupperneq 19
KirkjnritiÖ.
Konungur þinn kemur.
97
livað honum finnist. Að sjálfsögðu er trúaralvaran og
lotningin, ef hún kemur af valdhoði eða nauðung, ekki
mikils virði. Þvingun á hvaða sviði, sem er, og' þá ekki
sizt á sviði hins trúarlega og andlega lífs, getur aldrei
orðið neinum til sálubóta. En þvingunar ætti hér ekki
að þurfa við. Öllum þeim, sem trúin er lieilagt mál --
alla þá, sem elska drottin sinn og frelsara, hlýtur dymb-
ilvikan að vekja til alvarlegrar íhugunar, enn alvarlegri
en á öðrum tínium kirkjuársins. Þeir minnast þá lians,
sem afklæddist dýrðarskrúðanum, gerðist fátækur vor
vegna, að vér mættum auðgast af fátækl hans, minnast
hans, sem var svo auðugur af kærleika, að hann náði til
allra manna, vina og óvina — kærleika, sem aldrei var
fyllri og dýrðlegri, en þegar hann grét yfir þjóð sinni,
°g nokkurum dögum síðar færði kærleiksfórnina miklu
á Golgata. Hér sjáum vér hann, sem bæði vill og getur
frelsað oss frá öllu böli lífsins. Hér sjáum vér hann, sem
f»ar þyrnikransinn vor vegna. Hér sjáum vér hann, sem
vill vera konungur vor og drottinu um tíma og eilífð.
Mér virðist heilagur texti þessa dags leggja fyrir oss
bessa spurningu: Viltu kjósa Jesú fyrir drottin þinn og
konung? Þú hefir frjálsræði til að velja og liafna, eins
°g Gyðingarnir forðum. Viltu fylgja honum — ekki að-
eins syngja hósanna, heldur og fylgja honum i öllu
þínu lífi og starfi? Þú veizt, að hann sjálfnr konungur-
inn kom í þennan heim til þess að stofna bræðrafélag
Guðs barna, Guðs ríki á jörðu, Guðs ríki hið innra i
sálum mannanna, þar sem djöfullegt vald syndarinnar
er hrotið á hak aftur, og friður og fögnuður ríkir í heil-
ögum anda, Guðs ríki hið ytra, þar sem fullkomið rétt-
læti og bræðralag ríkir i öllum samskiftum manna, and-
legum og likamlegum, þar sem mennirnir lifa saman
sem glaður hópur Guðs barna, elska hverir aðra, lála
liver öðrum í té ástúð, umburðarlyndi og kærleika og
skifta með sér gæðum lífsins sem elskandi ijræður. Guðs
i'íki á jörðu var hugsjónin mikla og himinháa, sem kon-