Kirkjuritið - 01.03.1937, Qupperneq 34
112 Sigurbjörn Á. Gíslason: Um kristniboð. Kirkjuritiö.
ir þá færari um að lilýða Guðs vilja ljóst og leynt, og
það eflir alt sjálfboðastarf að góðum málum meira en
nokkurn, ókunnugan þeim efnum, grunar.
Kreppan, þjóðernishrokinn og vantrúin liafa talsverl
þrengt að kristniboði síðustu árin viða um heim, en samt
er það svo, að um þessar mundir starfa um 23 þúsund
aðkomnir evangeliskir trúboðar að kristniboði og auk
þess um 85 þúsund kaþólskir. í kristniboðssöfnuðunum
í ókristnum löndum eru taldar um 10 til 11 miljónir
evangeliskra manna og um 17 miljónir kaþólskra.
Líknarstarf og skólahald kristniboðsins er miklu
meira en svo, að liér sé liægt upp að telja- En liið bezta
er þó það, að í langflestum ókristnum löndum, þar sem
kristniboð liefir verið rekið um og yfir 100 ár, eiga
kristnir söfnuðir fjölmörgum ágætismönnum innlend-
um á að skipa, er halda myndu starfinu áfram, þótt allir
aðkomnir kristniboðar færu heim til sín.
Kristnir Japanar gefa út kristilegt dagblað, og' kristn-
ir Kínverjar eiga alkristna útvarpsslöð, er aðallega starf-
ar að útbreiðslu kristindóms, og lijá báðum þeim þjóð-
um eru ýmsir stórmerkir innlendir kristindómsfrömuð-
ir, sem hvert kirkjufélag Norðurálfu myndi telja sér
sóma að eiga í sínum hóp.
Trúvakningamennirnir kínversku standa ekki að baki
slíkum mönnum hvítum, en þó er Japaninn Kagawa
venjulega fremstur talinn meðal kristinna manna aust-
ur þar. IJann er jafn heimskunnur fyrir kristniboð, rit-
störf, líknarstörf og þjóðmálaendurbætur.
En það er mikUi víðar en í Kína og Japan, sem inn-
lendir afburðamenn eru kristnir orðnir á vorum dögum-
Þeir eru margir á Indlandi og víðar í Asíu, og þeir eru
iieldur ekki fáir kristnu mennirnir svörtu í Suðurálf-
unni, sem sýna frábæran dugnað og fórnfýsi við kristni-
boð meðal frænda sinna suður þar.
Því er það, að stundum er sagt, að lialdi guðleysið
áfram að eflast i Norðurálfunni, muni Asía og Afríka