Kirkjuritið - 01.03.1937, Blaðsíða 35
Kirkjuritið. Á. (i.: Koma <lr. H. Mosbechs.
113
senda þangað kristniboða um eða eftir næstu aldamót.
Að lokum leyfi ég mér, að ráðleggja mönnum að lesa
haekur og blöð um kristniboð, hvenær sem færi gefst.
Rg skil ekki annað en fróðleiksfúsum lesendum þyki
'iaesta skemtilegt, að kvnnast þar siðum og háttum fjar-
skyldra þjóða, og' ég trúi ekki öðru, en trúræknu fólki
verði hinn mesti trúarstyrkur að kvimast þar æfisög-
um merkra kristniboða. Engar aðrar frásagnir, utan
hihlíunnar, sýna hetur, að Drottinn hefir ekki slepl
hendi af mannkyninu, þrátl fvrir alt myrkrið, og að all
verður þeim til góðs, sem Guð elska.
Sigurbjörn A. Gislason.
KOMA DR. H. MOSBECHS
PRÓFESSORS.
Guðfræðisdeild Háskól-
ans liefir undanfarnar
vikur átt að fagna góð-
um gesti, dr. Holger Mos-
bech guðfræðiskennara
við Kaupmannahafnar-
háskóla. Hann kom hing-
að á vegum Kenslumála-
ráðunevtisins danska til
fyrirlestrahalds við Há-
skólann, en jafnframt
dæmdi hann um ritgerð-
ir og fvrirlestra kepp-
endanna þriggja um dó-
sentsembættið við guð-
fræðisdeildina.
Dr. Mosbech er nafn-
kunnur vísindamaður og
Iloll/er Mosbech.