Kirkjuritið - 01.04.1941, Side 11
Kirkjuritið. Mennirnir við vöggu kristninnar.
129
Fleira mætti rekja í þessa átt af samskiptum Péturs
við meistara sinn, þar sem Pétri skjátlast, en það ber
®finlega að sama brunni: Hrösunin stafar af kærleika
i’ans, karlmensku, viðbragðsflýti. Ilann þurfti mikla
tamningu, er einkunn lians þurfti ekki að breyta.
En vitanlega er sagan ekki sögð öll með því að benda
a hrasanir Péturs. Eftir er þá að skýra frá því, þar sem
haerleikur hans til frelsarans, karlmenska og mannkostir
visuðu honum rétta braut. Til þess að kynnast því er
ðezt að lesa Guðspjöllin og Postulasöguna. Hann er þar
æfinlega í fremstu röð og æfinlega sama birtan yfir hon-
um. Það þarf ekki að greina einstakar sögur til þess að
f*ra rök fyrir því, að Pétur verður fremstur í þeim hóp,
Se|ii Jesús valdi sér að aðstoðarmönnum, og fremstur
þeirra, er síðan báru kristnina út um löndin. Þar er
reynslusönnunin öllum einstökum frásögnum ofar. Það
er nóg að geta þess, að hvar sem Pétur kemur við sögu,
þá er það með þeim hætti, að ást vor til hans hlýtur að
yaxa. Hann er alltaf viðbúinn, alltaf leiftrandi af fjöri
lífi, alltaf eins og barn að hugarhreinleik og falsleysi.
Hugsum okkur t. d. söguna af því, þegar þeir sjá Jesúm,
eftir upprisuna, norður i Galíleu. Þeir eru að koma að
ettir fiskiróður og sjá Jesúm standa á bakkanum. Þeir
þekkja hann ekki fyr en þeir eru alveg að koma að landi.
Fn Pétur getur ekki beðið þess, að báturinn renni að
'midi. Hann stekkur út úr bátnum. „Það er hann“, segir
einn, og Pétur varpar sér þegar í valnið. Hann svarar
tyrstur við Sesareu Filippí, þegar Jesús spyr: „Hvern
teljið þið mig vera?“ og segir: „Þú ert Kristur“. Eða
þegar lærisveinar margir vfirgefa Jesúm vegna þess, að
þeini þótti kenning lians hörð. Jesús spyr: „Ætlið þið
ekki lika að fara?“ Pétur verður fvrstur til svars: „Til
livers ættum við að fara? Þú hefir orð eilífs lífs, og við
liöfum trúað og vitum, að þú ert hinn heilagi Guðs?“
Alltaf er það þetta sama, einlægnin, borin uppi af
krafti og kærleika. Það var að visu annar, sem kallaður