Kirkjuritið - 01.04.1941, Síða 12
130
Magnús Jónsson:
Apríl.
hefir verið lærisveinninn, sera Jesús elskaði. En oft liefi
eg hugsað, að einmitt svona mann, eins og Pétur, hljóti
Jesús að hafa elskað alveg óvenju lieitt.
Jesús sagði, að barnshugarfarið væri það, sem veitti
aðganginn að guðsríkinu, og að sá væri mestur, sem yrði
eins og barn. Og sé til lýsing á mikilmenni, sem var eins
og barn, þá er það lýsingin á Pétri postula.
Manni gæti komið til hugar, að svona maður, eins og
Pétur, væri ágætur, meðan liann má hlíta stöðugri forsjá
Jesú, en yrði svo eins og munaðarlaust og ósjálfbjarga
barn, þegar hann ætti að standa á eigin fótum.
En saga Péturs eftir brottför frelsarans sýnir allt ann-
að. Hann er þá tvímælalaust foringinn eins og áður. í
erfiðleikunum, vandanum og' ofsóknunum, sem gengu
yfir söfnuðinn i Jerúsalem á fyrstu árum lians, er það
tvímælalanst Pétur, sem forustuna hefir. Eduard Meyer
telur hann stofnanda og frumkvöðul fyrsta kristna safn-
aðarins. Hann gengst fyrir vali postula í stað Júdasar.
Hann kennir fram á hvítasnnnudaginn og flytur þar
sína kraftmiklu ræðu, sinn ótrauða vitnisburð. Hann
liefir orð fyrir þeim fyrir ráðinu. Hann fer um kring að
vitja annara safnaða. Hann ræðst í að skíra fyrsta lieið-
ingjann og ver það frammi fyrir söfnuðinum. Hann hefii’
orð fyrir þeim á postulafundinum, ásamt Jakobi, sem þá
liefir verið forstöðumaður safnaðai'ins vegna þess, að
Péturs var meiri þörf við trúboðið út um landið.
Um þetta er samróma vitnisburður óskyldra lieimilda.
Páli vitnar þetta líka, t. d. í Galatabréfinu, þar sem hann
segir, að þeir Jakob, Kefas og Jóhannes séu máttarstólp-
ar safnaðarins, og talar síðan um það, að þeir liafi skipt
með sér trúboðssvæðinu þannig, að Pétnr skuli fara til
Gyðinga, en hann til heiðingja. Svo gersamlega telur
hann Pétur gnæfa yfir alla frumpostula og samstarfs-
menn þeirra, að liann nefnir ekki aðra. Pétur er þar
jafnótvíræður foringi eins og Páli er í sinn hóp.