Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1941, Page 20

Kirkjuritið - 01.04.1941, Page 20
138 Jón Helgason: Apríl. því, sem meira þykir um vert. Hann var í því tilliti em- bættismaður af „gamla skólanum“ og lét sér í léttu rúmi liggja, þólt menn kendu vandlætingasemi hans í þeim efnum við „skriffinsku“. Og þó er enn ótalið það starfið, sem Hallgrími biskupi hefir sennilega verið mest áhugamál í hiskupsdómi hans. En það var endurskoðun eða endurþýðing Heilagrar ritn- ingar, sem látlaust var unnið að í 10 ár, og biskup tók sjálfur virkan þátt i lengst af, unz því verki mátti heita lokið. Ég er öllu því starfi hýsna kunnugur, með því að ég átti sjálfur sæti í annari þeirra nefnda, sem hann fékk skipaðar til þess að vinna að endurþýðingunni, og ætti því að geta borið um ])að öðrum fremur, live óþrotlegan áhuga hann liafði á að fá það verk unnið, svo að til fram- húðar yrði. Því að þótt biskup ynni ekki sjálfur að texta- samanburðinum eða endurþýðingarverkinu, þá stjórnaði hann því verki öllu frá fyrstu byrjun og sat tvisvar á viku hverri fundi með nefndunum háðum, eftir að hafa áður kynt sér það, er lieima hafði verið umiið að texta- samanburði og endurþýðingu. Sem nærri má geta, varð ekki hjá því komist, að einatt sýndist þar sitt hverjum, og að til nokkurra þráttana gæti komið á hinum viku- legu fundum, sem haldnir voru að mestu 8 vetur i röð, að því er Nýja testamentið snerti, en 10, að því er snerti Gamla testamentið. Alt að einu hefi ég' aðeins hinar heztu endurminningar frá þátttöku minni í því starfi. Og þótt það kæmi fyrir, að hiskup yrði þar stundum i minni liluta, þá sýndi hann þann samvinnuþýðleik í starfinu, að þess varð aldrei vart, að hann fyltist þykkju þeirra liluta vegna. Ég get yfir höfuð ekki hugsað mér samvinnuþýðari mann en Hallgrím biskup. Mér er því ljúfara að minnast á þetta nú á aldarafmæli hiskups, sem mér hefir fundist hans að alt of litlu getið í samhandi við þetta afarþýðingarmikla starf, sem hann var sjálfur aðalhvatamaður að, tók frá upphafi til enda svo lifandi og virkan þátt í og offraði árum saman flestum stundun-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.