Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1941, Page 23

Kirkjuritið - 01.04.1941, Page 23
KirkjuritiS. Séra Pétur Helgi Hjálmarsson frá Grenjaðarstað. Við lát séra Helga Hjálm- arssonar 17. marz átti Prestafélag Islands á bak að sjá dyggum starfs- manni. Hafði liann þá i rétt átta ár — eða frá þvi í marz 1933 — gengt fyrir það reikningshaldi og af- greiðslu rita þess, og það með miklum ágætum. Var liann orðinn svo samgró- inn félaginu og mynd hans rist svo skýrum dráttum í lífi þess og starfi, að mjög mörgum mun jafnan hafa komið Séra Pétur Helgi Hjálmarsson. h£mn f hug> er þeir heyrðu Prestafélagsins getið.Fyrir íélagsmönnum lágu gagnvegir heim til hans, að Hring- braut 144, og féhirðis-sessinn skipaði hann þannig á að- alfundum, með glaðværð og græskulausri fyndni og ein- lægri ástúð, að tregi mun vakna, er vér sjáum þar næst sseti hans autt. Nú eru liðin 13—14 ár frá því, er við kyntumst fyrst. Við vorum háðir á leið vestur til Akureyrar landveg á Prestafund. Mér þótti maðurinn allur hinn mikilúðleg- asti, í hærra lagi á vöxt og herðibreiður — afrendur að afli auðsjáanlega — og sat hest sinn svo, að unun var

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.