Kirkjuritið - 01.04.1941, Page 24
142
Ásmundur Guðmundsson:
April.
á að hoi’fa. Hann var aufúsugestur í samferðamanna-
hópinn, hezli félagshróðir.
Hann stóð þá á sextugu, fæddur 14. ágúsl 18(47 að Vog-
um í Mývatnssveit. Foreldrar hans, Iljáhnar Helgason
og Sigriður Vilhelmína Pétursdóttir, voru í fremstu röð
bændafólks, af Skútustaða og Reykjahliðarættinni. Hann
kom tvítugur i Latínuskólann, þótti þegar mikið að hon-
uin kveða, og leituðu bekkjarbræður hans, sem yngri
voru, til hans halds og trausts. Bera þeir honuin glæsi-
lega söguna frá þeim árum. Hann var „fríður og knár
sem Gunnar og Kári“ og' svo íþróttum búinn, að fæstir
þurftu við hann að keppa, leikfimismaður ágætur, frárri
á skautum en flestir aðrir, og þótti lítið koma til Tjarnar-
innar i Reykjavík hjá Mývatni, syndur vel, mjúkur og
snarpur í glímu. Iðkaði hann hana mikið og var einn af
þeim, er stofnuðu glímufélagið Ármann. Á ferðalögum,
í skóla og' úr, þótti hann jafnan sjálfkjörinn fararsljóri,
fyrstur lagði hann út í beljandi árnar, og' var örugt taum-
haldið, þegar straumurinn skall hestinum um hrjóst og
bóga. Valdi hann svo hinurn vaðið, og vissu þeir, að óhætt
var að treysta leiðsögu hans. Á sumrum var honum vinn-
an iþrótt og leikur, þar sem hann skáraði á flæðiengi og
sló dagsláttuna á fáum klukkustundum. Andlegu störfin
stundaði hann einnig af stakri skyldurækt. Hann kaus
sér prestsstarfið, og' átti það vel við hjartalag hans. Hann
útskrifaðist úr Prestaskólanum 1894 og vígðist árið eftir
til Helgastaða í Reykjadal. Þjónaði hann því brauði i
12 ár, unz hann gerðist aðstoðarprestur séra Benedikts
Kristjánssonar á Grenjaðarstað. Árið 1911 voru hæði
prestaköllin, Ilelgastaðir og Grenjaðarstaður, sameinuð
í eitt prestakall, og fékk séra Helgi þá veitingu fyrir því.
Séra Ilelgi kvæntist ári áður en hann lauk embættis-
pi’ófi, 1893, konu sinni, sem lifir liann, Elísabetu Jóns-
dóttui'. Bjug'gu þau miklu rausnarbúi á Gi-enjaðarstað
og bættu jörðina stórum, og' héldu uppi þeirri risnu, er
vel sómdi þessu fornfræga höfuðbóli. Mátti svo heita,