Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1941, Blaðsíða 28

Kirkjuritið - 01.04.1941, Blaðsíða 28
146 Björn Magnússon: Apríl. uppi. Og engu síður á þetta við um ill ráð: Þau geta hepn- ast, en einnig brugðist, og það oft fyrir dásamleg og ófyrir- sjáanleg atvik. Þetta sýnir oss, að þótt oft hepnist ráðagerðir vorar, þá er þó bak við alla rás lífs vors annar vilji miklu mátkari til framkvæmda, sem getur ónýtt öll ráð vor. Drottinn er sá, sem stýrir gangi vorum, hvert sem vér höfum hugsað oss að stefna. En mannsviljinn stefnir oft í aðra átt en guðsviljinn. Hjarta mannsins hefir sinn eiginn vilja. Og' þegar hann snýst gegn Guði, verður hann undirrót alls höls mann- lifsins. Það er hin Guði fjandsamlega viljastefna, sem veldur öllum árekstrum. Mannsviljinn girnist að vera sjálf- ur hinn æðsti vilji, er engum þurfi að lúla. Grundvallar- syndin er guðleysið: Að neyta að viðurkenna Guð sem hinn æðsta, og óska þess, að enginn Guð væri til. Þannig er syndin uppreisn liins sjálfráða mannsvilja gegn Guði, og um leið sjálfselska ogsjálfsdýrkun. Maðurinn hefur sjálfan sig upp yfir alt, dýrkar sína eigin persónu í Guðs stað. Hvernig má slíkt gerast? Orðskviðurinn forni bendir á svar: Samverkan guðlegrar stjórnar og mannlegs frjáls- ræðis. Hversu sem mennirnir kunna að upphugsa veg sinn, þá er það, þegar til kastanna kemur, hinn allsvaldandi Guð, sem stýrir gangi Iians. Ekki þannig, að Guð ráði hverri viljaframkvæmd mannsins. Vér erum virkilega frjálsar verur, ábyrgar um vort eigið líf. En þó er það Guð, sem stýrir gangi vorum. Þótt hann vilji eklci alt, sem gerist, þá hefir hann samt höndina á stýrisvelinum, og megnar að láta þær bárur andstreymis og eymdar, sem vér köllum með syndum vorum yfir sjálf oss og aðra, verða til að lyfta fleyi voru fram á við. Guð lætur ekkert afskiftalaust, og því síður er hann vanmáttugur að snúa sér að því illa, sem vér fremjum, og snúa því til góðs. En Guðs vegir liggja oft miklu ofar vorum skiln- ingi, og almætti hans og vizka megnar að láta það að

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.