Kirkjuritið - 01.04.1942, Blaðsíða 3
Kirk.juritiS.
Fermingarsálmur.
Breiddu nú, Jesú minn, blessandi faðminn þinn hlýja
börnunum móti, sem helga þér vorblómann nýja.
Lát þessa stund
lífsins að síðasta blund
öll þeirra ævispor vígja.
Sannleikans konungur, sannleikans brautir þau leiddu.
Sólkerfa snillingur, hervirki myrkranna eyddu.
Sannleiki og trú
sé þeim til himinsins brú.
Hreinleikans götu þeim greiddu.
Vorgjafi kærleikans, lát hjá þeim ljósþrána skarta.
Leiti þau fagnandi í guðsríkis sumarið bjarta.
Gerðu þau ljós.
Ger þau sem ilmandi rós,
engil hins harmþrungnn hjarta.
Konungur lífsins, ó, gefðu þeim eld þinn í anda,
eilífan kraft til að stækka í hættum og vanda.
Vertu þeim hlíf.
Veittu þeim unað og líf.
Leið þau til himneskra ianda
Árelíus Níelsson.