Kirkjuritið - 01.04.1942, Blaðsíða 28

Kirkjuritið - 01.04.1942, Blaðsíða 28
130 H. H.: Barnaheimilisn. þjóðkirk. Apríl. styrktar í því að koma npp heimilum fyrir börn og starf- rækja þau. Um sjálfstætt starf í þessum efnum, sem kirkjan eða nefndin fyrir hennar hönd sjálf ber ábvrgð á, hefir enn ekki verið að ræða — til þess hefir hana með- al annars skort fjármagn. Nefndin Iiefir til þessa starfað á nokkuð breiðari grundvelli en henni var ætlaður í fyrstu, en þess gerðist vissulega þörf, þar eð vér Islendingar vor- um mjög stutt á veg komnir í þessum efnum þegar nefnd- in hóf starfsemi sina. Taldi nefndin sér þvi skylt að koma, eftir megni, hverjum þeim til hjálpar, sem hefja vildi starf til hagsbóta og heilla fyrir börn alment. En nú er svo komið, að því máli virðist vera borgið. Hafa bæði ein- staklingar og félög víðsvegar um landið tekið höndum saman til þess að leysa það mál, svo að mikils má vænta af þeim samtökum í framtíðinni. Fyrir því telur Barna- heimilisnefnd þjóðkirkjunnar, að sér sé nú óhætt að þrengja verksvið sitt að mun og snúa sér nú að þeirri lilið málsins, sem starfsemi hennar upphaflega átti að bein- ast að: Starfinu fijrir vangæf og vanrækt börn. Að þessu viðfangsefni mun starfinu beint eftirleiðis. Það er vissu- lega vandasamt starf og ábvrgðarmikið, en jafnframt á- kaflega þýðingarmikið. Um það skal vissulega engu spáð, hversu nefndinni tekst að leysa hlutverk sitt af hendi. Það er svo mjög undir því komið, livern stuðning hún hlýtur hjá prestum og söfnuðum landsins. Áhugi manna fyrir starfinu þarf að vaxa og fjáröflunin þarf að ganga betur. Þetta hvorttveggja verðum vér að gera oss Ijóst, jafn- framt þvi, er nýtt starfstímabil hefst, sem á að verða til heilla fyrir bágstadda bræður og systur og til sóma fyrir kirkju lands vors. Leggjum þá enn einu sinni hönd á plóg- inn, minnug orða drottins: „Hver, sem tekur á móti einu sliku barni i mínu nafni, hann tekur á móti mér.“ Hálfdan Helgoson. Séra Marinó Kristinsson á ísafirði hefir verið kosinn prestur i Valþjófsstaðarprestakalli.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.