Kirkjuritið - 01.04.1942, Blaðsíða 10
112
Á. Þ.: Dauði Jesú Krists.
April.
að stuðla að komu þess. Það gjörist, þegar hugsjónir og
trú Jesú Krists verða leiðarstjarna mannanna, og kærleiki
hans sigrar harðúð og dramb vors eigin hjarta. Það gjörist,
þegar kærleiki hans og trú, máttug og eilífsterk knýr oss
sameiginlega til þess að snúa af rangri hraut og reisa nýja
og bjartari framtíð á rústum þess fallna og hrunda. Það
gjörist, þegar trúin á „Guð í alheimsgeimi og Guð í sjálf-
um þér“ vex og styrkist, trúin á það, að hið góða í mönn-
unum sé ekki dáið í brjálæði blóðsúthellinganna, heldur
sofi það um hríð, en verði máttugt og sterkt á ný, þegar
hönd drottins snertir það. Og í því trausti viljum vér
öll biðja:
Kraftarins faðir, kraftaverkið gjörðu,
gefðu mér dýrðar þinnar sólarsýn.
Amen.
Dauði Jesú Krists.
Úr myrku skýi höglin hrímköld hrökkva,
og hristast geislar dauft, er húmið lýsa,
úr djúpum gröfum dauðir menn unp rísa,
og dynur foldin sveipuð þokumökkva.
Við breiðar strendur bylgjum hafs er hrannað,
þær brotna þungt við dimmar klettaslóðir,
ei fljóta lækir, fuglar híma hljóðir,
og fölri jörð er sólarljósið bannað.
Á Golgata þ á gefur orð að skilja
Guðmaðurinn, sem harmi þung svo hljóða:
„f mér er, faðir, fullnægt þínum vilja.“
Af Talmuds lýð, er tryllir heiptin óða,
og tapa ættarlandi verður þjáður,
á krossinn negldur, kvalinn saklaus, hrjáður,
er Kristur deyddur frelsarinn allra þjóða.
Gabríel cle la C. Valdes (Placido).
Þýðing Árna Þorvaldssonar.