Kirkjuritið - 01.04.1942, Blaðsíða 24
12(5
Háldan Helgason:
April.
innar að því með aðstoð góðra manna að vekja á-
liuga manna fyrir þessum málum út á við, afla fjár
til starfsins og reyna að koma á föstu skipulagi um
land all til hjálpar börnum og eftirliti með uppeldi
þeirra.
2. Að fermingardagurinn í hverri sókn sé ákveðinn til
þess að afla þessu máli fjár og fengið sé til þess
leyfi ríkisstjórnarinnar í eitt skifti fvrir öll.
Á prestastefnu, sem haldin var á Hólum í Iljaltadal
árið 1928, skýrði séra Bjarni Jónsson málið fyrir norð-
lenzkum prestum og var samþykt svohljóðandi tillaga í
málinu:
Prestastefnan vonar, að starf til hjálpar vanræktum
börnlun fái aukið fylgi i landinu, og vill framvegis veita
því stuðning sinn.
I stað þeirra séra Haralds Níelssonar og séra Friðriks
Friðrikssonar voru kosnir í nefndina: Séra Ólafur Magn-
ússon, prófastur í Arnarbæli og séra Hálfdan Helgason,
sóknarprestur á Mosfelli.
2. Starf liðinna ára. Þegar svo talið var, að málið væri
nægilega undirbúið, var tekið til starfa. Það var árið 1929.
Séra Guðmundur Einarsson var kosinn formaður nefnd-
arinnar og hefir verið það síðan. Hinsvegar tók prófessor
Ásmundur Guðmundsson að sér framkvæmdastjórn alla
og gegndi því starfi til ársins 1940, er undirritaður tók
við samkvæmt tilmælum hans og kosningu nefndarinnar.
Fyrsta verkefni, sem fyrir nefndinni lá, var auðvitað
að afla fjár til starfsins. Þá fjáröflun hefir hún svo liaft
með höndum öll árin síðan og ávalt með sama hætti: Sölu
á fermingarmerkjum og fermingarkortum. Hefir fé safn-
ast með þessu móti á liðnum árum sem hér segir:
1929 ..............kr. 4.502.00
1930 ................— 4.238.00
1931 ............... — 2.147.00
1932 ............... — 1.463.00
1933 ............... — 1.921.00