Kirkjuritið - 01.04.1942, Page 9
Kirkjuritið.
Kraftaverk trúarinnar.
111
kirkjan hafði áður haft með höndum og átt frumkvæði
að. En margt bendir nú á, að viðhorfið til kirkjunnar sé
að breytast. Og skilningurinn mun vaxa á þeirri hættu,
að vanræksla trúarþrárinnar geti einnig hér hjá oss orðið
til þess, að hún brjóti sér nýjar leiðir og beinist inn á
háskalegar villugötur, eins og þegar hefir átt sér stað í
Onræðisríkjunum.
Þessir háskalegu og viðsjálu tímar, þeir hrvllilegu at-
ÍHirðir, sem daglega eru að gjörast, það ástand, sem skap-
ast hefir, einnig með vorri eigin þjóð, og mörgum veldur
að vonum áhyggjum og kvíða — alt þetta sýnir ljóslega
þörf þjóðarinnar nú á andlegri vakningu og á auknu sið-
terðilegu og lmgsjónalegu uppeldi. Hér blasir við ekki
aðeins hið mikla framtíðarverkefni hinnar íslenzku kirkju,
heldur snertir þetta mál einnig ríkisvaldið sjálft, skólana,
heimilin, já, hvern einasta hugsandi mann.
Ég minni á þetta nú, er prestar hinnar íslenzku kirkju
eru hér saman komnir, undir forustu biskups sins, til
þess að halda hina árlegu synodu. Alvara þessara tíma,
hsetturnar, sem nú steðja hvarvetna að, vandinn rriikli,
sem vor ástkæra þjóð nú er stödd í — alt þetta hlýtur að
hnýja oss til umhugsunar og alvöru, og til sameiginlegrar
'eitar að úrræðum og hjálp.
En það er ekki aðeins vor eigin fámenna þjóð, sem nú
er áhyggjufull um börnin sín. Frá brjóstum miljónanna
Um víða veröld stigur nú bæn Jaírusar: Kom þú. áður en
harnið mitt andast. Kom þú, áður en það verður myrt í
faðmi mínum, af þeim blinduðu mönnum, sem nú gjöra
Jörðina bölvaða og himininn sjálfan að blóðugu eldregni.
Hvenær er helsjúkri veröld, livenær er oss öllum meiri
þörf á krafti og styrk trúarinnar en einmitt nú? Hvenær
hefir þjökuðu mannkyni verið það meiri lífsnauðsyn að
trúa á lækninguna, trúa á kraftaverkið en einmitt nú?
^ertu ekki hræddur, trúðu aðeins. Það voru orð Jesú
Erists á tima mikillar neyðar. Ivraftaverkið gjörist hvar-
vetna þar, sem trúin er lieil og sterk, og vér eigum sjálf