Kirkjuritið - 01.04.1942, Síða 22
124
E. Th.: Séra Sveinn Guðmundsson.
Apríl.
Árnesprestakall í Trékyllisvík. Þjónaði hann því presta-
kalli til ársins 1937, er hann sótti um lausn frá embætti
vegna heilsubrests.
Séra Sveinn kvæntist 17. sept. 1892 Ingibjörgu Jónas-
dóttur, prests Guðmundssonar frá Staðarhrauni, og var
hjónaband þeirra hið farsælasta. Varð þeim 9 harna auð-
ið, og eru 7 þeirra á lifi, öll hin mannvænlegustu, þar á
meðal hinir þjóðkunnu læknar Jónas og Kristján. Auk
barna sinna ólu þau upp 4 fósturbörn.
Þessi eru þá í fám orðum hin helztu æfiatriði þessa
merkismanns, sem var hið mesta prúðmenni, er ávann
sér velvild. og vináttu sóknarharna sinna og annara, er
kynni höfðu af honum.
Merkur maður, sem var nákunnugur séra Sveini, hefir
minst lians á þessa lund og le}Tfi ég mér að tilfæra hér
orðrétt ummæli lians:
„Séra Sveinn var maður hár vexti, virðulegur í allri
framgöngu, yfirlætislaus og' hið mesta ljúfmenni. Hann
var sérstaklega ástsæll af sóknarbörnum sinum. Heimili
prestshjónanna i Árnesi var orðlagt fyrir gestiásni og
stóð öllum opið. Vildi séra Sveinn livers manns vandræði
levsa og ölhun lieilt ráða. Hann var hinn skemtilegasti
í viðræðum við gesti sína, gamansamur, margfróður og
athugull. Hann þótti hinn hezti kennimaður og lét sér
mjög ant um fræðslu barna og unglinga. Lagði liann
mikla rækt við að búa hörn undir fermingu. Ilann tók
oft unglinga á heimili sitt til kenslu, og örvaði þá, sem
honum þótti til þess fallnir, til frekara náms. Hann var
sérstaklega góður kennari og ki-afðist vandvirkni og ná-
kvæmni, og hjTgg ég, að allir þeir, sem urðu kenslu hans
aðnjótandi, muni æfilangt húa að þeim grundvelli, seni
hann lagði á þann veg að þroska þeirra.“
Séra Sveinn var áhugasamur félagi í hópi emeritpresta
í Reykjavík, og er hann tók til máls á fundum, flutti hann
snjallar ræður. Á heimili þeirra hjóna ríkti alúð og hlýja.
Var þar gott gestum að koma. Einar Thorlacius.