Kirkjuritið - 01.04.1942, Síða 26

Kirkjuritið - 01.04.1942, Síða 26
128 Háldan Helgason: Apríl. leitar ungfrú Sesselja Sigmundsdóttir til Barnaheimilis- nefndar þjóðkirkjunnar og biður um aðstoð nefndarinn- ar til þess að koma upp heimili fyrir hástödd börn. I marz 1930 kaupir svo nefndin jörðina Hverakot í Grímsnesi fyrir kr. 8.000.00 og útvegar jafnframt styrk frá Alþingi, kr. 5.000.00 og kr. 10.000.00 að láni úr opinberum sjóði. Síðan leysir nefndin jörðina úr veðböndum og gefur bana til starfsins. Var svo sett á stofn barnaheimili undir nafn- inu „Sólbeimar“ og það gert að sjálfseignarstofnun með skipulagsskrá undirritaðri af forstöðukonu beimilisins og formanni nefndarinnar 2. nóv. 1933 og staðfestri af kon- ungi 12. jan. 1934. Frá þeim tíma hefir svo nefndin verið Sóllieimastofnuninni margsinnis til aðstoðar við útvegun nauðsvnlegra lána og styrkja vegna húsbygginga þar og auk þess veitt heimilinu styrki úr sjóði sínum, að upp- liæð kr. 4.923.00 ó þessum árum. — Tvö reisuleg bús liafa nú verið reist þar, annað fyrir fávita, en bitt fyrir beilbrigð börn. Hefir forstöðukonan, ungfrú Sesselja Sig- mundsdóttir, rækt störf sín með ötulleik og kærleika til málefnisins. og er kirkju vorri sómi að bafa stutt það dyggilega. — Nú er svo þessi stofnun að mestu í böndum ríkisins og i umsjón þess. b. Dagheimilið á Siglufirði. Á árinu 1931 vaknar áhugi fyrir því að koma upp dagbeimili á Siglufirði. Ungfrú Friðþóra Stefánsdóttir sigldi til Englands til þess að kynna sér rekstur slíks beimilis með styrk frá barnaheimilis- nefndinni og Kvenfélagi Siglufjarðar. Starfið bófst svo, þótt lítið væri í sjóði til að byrja með, en fór þó prýði- lega af stað fyrir drengilega bjálp einstakra manna og er nú starfrækt af kvenfélagi kaupstaðarins. c. Barnaheimili að Lundi í öxarfirði. Þar setti Dagur Sigurjónsson skólastjóri á stofn sumarbeimili fyrir heilsu- veil börn árið 1934, og liefir barnaheimilisnefndin stvrkt það starf með lítilsháttar fjárframlagi á bverju ári síðan. Átti undirritaður kost á því að kvnna sér þetta starf á síðastliðnu sumri. Var það vissulega ánægjurík stund að

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.