Kirkjuritið - 01.04.1942, Síða 37
III
Bækur Prestafélags íslands.
»Háiogaland“,
eftir Eivind Berggrav biskup, kostar í shirtingsbandi
8 kr., í skinnbandi 10 kr. Þeim, sem vilja eignast bók
þessa fræga höfuðbiskups Noregs, er vissast að fresta
ekki lengi kaupum á henni.
»HeimiIisguðrækni“.
Nokkrar bendingar til heimilanna. Fáein eintök óseld.
Kosta í bandi kr. 2.50, en ób. 1.50.
»,Samanburður samstofna guðspjallanna“,
gjörður af SigurSi P. Sívertsen, fæst í bandi fyrir ö
kr., en ób. 4 kr.
Sjö erindi,
eftir dr. Björn B. Jónsson, er hann nefnir: „Guðsríkí
kosta ób. 2.50, en kr. 3.50 og 4.00 í bandi.
»Kirkjusaga“,
eftir Vald. V. Snævarr skólastjóra, kostar i bandi
kr. 3.75.
>,Kristur á vegum Indlands“
eftir Stanley Jones. 1 jjýðingu séra Halldórs Kol-
beins. Verð 2 kr.
»Messusöngvar“
Sigfúsar Einarssonar kosta í bandi 4 og 5 krónur.
»Prestafélagsritið“
fæst hér eftir með þessu verði: 1. árg. 5 kr., 3.—16.
2 kr. hver árgangur. En nýir kaupendur að „Kirkju-
ritinu“ fá það fyrir helming þess verðs. — 2. árg. er
ófáanlegur í bóksölu, en vilji einhver selja óskemt
eintak, borgar Prestafélagio fyrir það 10 krónur.
Ofantaldar bækur má panta hjá bókaverði Prestafé-
lags fslands, frú Elísabetu Jónsdóttur, Hringbraut 144,
sími 4776, Reykjavík, hjá bóksölum í Reykjavík og
víðar, og hjá flestum prestum landsins.
Ennfremur fást hjá sama Skýringar yfir Galatabréfið
eftir Magnús Jónsson, verð 5 kr., og Inngangsfræði
Gamla testamentisins eftir Ásmund Guðmundssoa,
verð 10 kr.