Kirkjuritið - 01.03.1944, Síða 41
Kirkjuritið.
Fréttir.
119
Allmiklar og fjörugar umræður urðu um málið, og koinu fram
oftirfarandi tillögur, er samþykktar voru einróma:
1. Héraðsfundurinn skorar á fræðslumálanefnd þá, er nú
starfár, að gæta þess í tillögum sínum, að kristindómurinn sé
virtur sem menningargrundvöllur þjóðarinnar og skipi náms-
efni lians, þar á meðal talin kirkjusaga og kirkjusöngur, þann
sess, er jiví samsvarar í æðri sem lægri skólum landsins.
2. Héraðsfundurinn skorar á kirkjustjórnina að hlutast til
um, að lientugar námsbækur í kristnum fræðum séu jafnan fyr-
ir hendi og séu þær hækur ekki aðeins miðaðar við nám skóla-
skyldra barna, lieldur einnig við unglinga, sem komnir eru yfir
fermingu.
3. Héraðsfundurinn telur nauðsynlegt, að öll þau heimili,
sem uppeldisskyldum liafa að gegna, láti sér annt um kristilega
uppfræðslu barna. Jafnframt er skorað á kirkjustjórnina að
gefa út og útbýta til heimilanna stuttum leiðbeiningum um
fyrstu undirstöðuatriði kristindómsfræðslunnar ásamt ákveðnu
námsefni, svo sem bænum og sálmversum. Prestar hafi eftirlil
með árangri þessa fræðslustarfs.
4. Héraðsfundurinn skorar á kirkjuráð og kirkjustjórn að
undirbúa löggjöf um aukið kristindómsnám í skólum landsins
og aukið starf prestanna til áhrifa á æskulýðinn.
Að loknum umræðum um þetta mál flutti prófastur stutta
ræðu að nokkru leyti i sambandi við aðalefni málsins.
Að lokum sungu fundarmenn sáhninn: „Lýs milda ljós.“
Björn Stefánsson.
Frá Bægisárprestakalli.
A Bægisá, þar sem kuldinn hefir verið óþolandi, kom sókn-
árnefnd mér að óvörum með nýtt hitunartæki — dýrindis
olíuofn, sem mjög ryðja sér nú til rúms. Var það vel til fundið
áð gefa kirkjunni slíka jólagjöf. Dalafólkið mitt þarna fram
frá er alveg ágætt, en þar vantar bagalega 3ju kirkjuna, að
Myrká. Þar var vegleg kirkja rifin fyrir rúmum 30 árum í óþökk
margra og nú saknað af öllum i gömlu Myrkársókn, nema þeim,
sem næstir.eru Bægisá.
(Úr bréfi frá sóknarpresti)r
Samkoma
fyrir kristiieg unglingafélög hér í bænum var haldin í Tjarnar-
bió sunnudaginn 27. f. m. Fjölmennti unga fólkið, svo að húsið
var alskipað. Er það mikið fagnaðarefni, er nú rísa bæði nýir
sunnudagaskólar og ný kristileg unglingafélög. Andleg lög og