Kirkjuritið - 01.03.1944, Síða 42
120
Fréttir.
Marz.
Ijóð voru leikin og sungin, lesið upp, og séra Árni Sigurðsson
fiutti fögur og þróttmikil hvatningarorð. Að lokum var sýnd
myndin Konungur konunganna.
Guðfr-æðideildin efndi til samkomu þessarar og þakkar öll-
um þeim, er studdu að því með einhverjum hætti, að lnin varð
haldin. Dagskránni var útvarpað.
Biskupinn Sigurgeir Sigurðsson,
hefir verið kjörinn heiðursdoktor við liáskólann í Norður-
Dakota.
Nýjar biblíusögur
handa börnum ásamt kirkjusöguágripi eru nú að koma út i
lieftum. Verða heftin þrjú, og er miðheftið fullprentað. All-
margar myndir verða í bókinni og uppdrættir. Hún er að nokkru
leyti sniðin eftir biblíusögum Berggravs biskups, aðallega
Gamla testamentið. Þessir liafa unnið að samningu: Séra Sigur-
jón Guðjónsson, séra Þorsteinn Briem, séra Hálfdan Helgason,
Ásmundur Guðmundsson, Helgi Eliasson og Ingimar Jóhannes-
son. Freysteinn Gunnarsson bjó undir prentun.
Fögur gjöf.
Fyrir síðustu jól barst Álftártungukirkju á Mýrum að gjöf
vegleg altaristafla, máluð af Ásgeiri Bjarnþórssyni listmálara. Er
hún gefin kirkjunni af hjónunum Aðalhciði Guðmundsdóttur og
Úlfari Bergssyni í Reykjavik, til minningar um son þeirra Örn,
er lézt.á fyrsta ári 26. júni 1942, og var jarðsettur við Álftár-
tungu kirkju.
Passíusálmarnir.
Tvær nýjar útgáfur af Passíusálmunum hafa komið út í vetur.
Hin fyrri er á vegum Tónlistarfélagsins, en hin síðari fsa-
foldarprentsmiðju.
Er þess að vænta, að báðar nái mikilli útbreiðslu með þjóðinni.
Kirkjuritið kemur út í heftum, 1-3 í senn, alla mánuði ársins
nema ágúst og sept. Verð innanlands 10 kr. í Vesturheimi 2 doll-
arar. Gjalddagi 1. apríl og 1. okt., ef menn kjósa heldur og borga
i tvennu lagi. Afgreiðslu og innheimtu annast frú Elísabet Jóns-
dóttir, Hingbraut 144, sími 4776, Reykjavik.