Kirkjuritið - 01.01.1948, Page 26
24
KIRKJURITIÐ
Valdimar naut alla ævi. Töldu Gnúpverjar það mikinn sóma
sveit sinni, að eiga slíkan mann innan sinna vébanda.
Hjá séra Valdimar Briem fór það saman, að hann var
áhrifamaður til góðs, og jafnframt vitur og vinsæll af allri
alþýðu manna, um leið og hann var,.að skoðanahætti eldri
tíma, talinn til ,,höfðingjanna“.. Sóknarmenn hans sáu og
fundu í daglegri framgöngu hans, kenningum og starfi öllu,
að þar bjó göfug sál í glæsiiegri tjaldbúð, drengur góður,
sem gerði sér far um að hugsa rétt og vilja vel, maður,
sem eigi aðeins var vígður prestur, heldur vildi og prýða
embættið með líferninu.
Fyrir sín eiginlegu.prestsstörf var séra Valdimar ástsæll
mjög meðal sóknarbarna sinna. Mikið orð fór af prédikun
hans fram eftir aldri. Ræður hans voru fremur stuttar,
en skýrar og ljósar, eins og annað, sem hann lét frá sér
fara, svo að gott .var að gera sér grein.fyrir efni þeirra og
muna aðalþráðinn. Þurfti enginn að vera í.vafa um það að
messu lokinni, hvað. séra Valdipiar hefði viljað segja söfn-.
uðinum með ræðu. sinni, Kirkjufólkið gerði ræðurnar að
umtalsefni á eftir, og hlakkaði til næstu ræðunnar.
Brynjólfur frá Minna-Núpi, sá sannorði, spaki og.öfga-
lausi maður, ritaði í.III. árg. Kbl. um ræður séra Valdimars:
,,Ég, sem sóknarbarn séra Valdimars, get sagt það með
sanni, að mér og öðrum filþeyrendum .hans þykir engu
minna í það.varið, að heyra hann. flytja ræður sínar, en að
lesa eða heyra sálma hans, um það munum vér allir sam-
dóma.“ 1 minningum sínum. segir Einar Jónsson mynd-
höggvari svo frá, í sambandi við uppvaxtarár sín að Galta-
felli: „Fólk streymdi á þessura árum til Hrepphólakirkju
úr öllum áttum, til þess .að hlusta á séra Valdimar Briem,
sem var dáður kennimaður og einkar höfðinglegur."
Um barnafræðslu og fermingarundirbúning séra Valdi-
mars segir eitt fermingarbarna hans, skilgóður maður og
vandaður: „Hann.var ágætur barnafræðari, kenndi dæmi-
sögur Krists og fjallræðuna, útskýrði þetta efni vel, og
lagði út frá því áherzlu á góða breytni." Þessi stutta, en