Kirkjuritið - 01.01.1948, Page 29
DR. THEOL. VALDIMAR BRIEM
27
Þá ritaði séra Valdimar meðal margs annars í Kbl. árið
1897 grein, sem hann nefndi: „Sautjánda öldin.“ Er hún
iRuð til þess að andmæla öfgum og misskilningi í garð
islenzku kirkjunnar á 17. öld, er séra Valdimar þótti kenna
1 Landfræðisögu dr. Þorvalds Thoroddsens. Er greinin rit-
uð af hógværð, stillingu og kurteisi, eins og allt, sem séra
Valdimar ritaði, en athugasemdir hans vel rökstuddar, og
iTeinin að mörgu merk. Þá er og í þessum árgangi Kirkju-
blaðsins grein, er séra Valdimar nefnir: Aðvörun til manna
a landskjálftasvæðinu. Er það áminning til manna um að
fara ekki út í deilur út af skiptingu samskotafjár þess, sem
safnað hafði verið til að styrkja þá, sem fyrir mestu tjóni
höfðu orðið af jarðskjálftunum miklu 1896. Síðar, í jan-
úarmánuði 1898, ritaði séra Valdimar að beiðni dr. Þor-
valds Thoroddsens skýra og greinagóða frásögn um jarð-
skjálftana 1896 í Gnúpverjahreppi, og birtist hún í riti dr.
Lorvalds: Jarðskjálftar á Suðurlandi, Kpmhöfn 1899, ásamt
frásögnum um sama efni úr öðrum hreppum á jarðskjálfta-
svæðinu, skráðum af nafnkenndum mönnum úr hverjum
hreppi.
Annars yrði það oflangt mál, enda óþarfi í þessari minn-
ingargrein, að telja allt það, sem birzt hefir eftir séra Valdi-
War í íslenzkum blöðum og tímaritum, austan hafs og vest-
an. Nægir hér að taka það fram, að um daga séra Valdi-
mars, þá er hann var í blóma aldurs, voru það fá blöð og
tímarit, sem ekki birtu eitthvað, og sum mikið, eftir hann.
Á þetta þó sérstaklega við um þau blöð og tímarit, sem létu
sig kristindóminn varða, svo sem Kirkjublaðið og Nýtt
kirkjublað, Verði ljós, Bjarma og Prestafélagsritið hér
heima, og Sameininguna og Breiðablik vestanhafs, o. fl.
Ló skal þess getið, að sjaldnar birti séra Valdimar óbundið
mál eftir sig, þá er Kirkjublaðið var hætt að koma út, en
því meira af andiegum ljóðum.
Hér skal þess þó getið, að í Almanaki Þjóðvinafélagsins
1914, því er dr. Jón Þorkelsson gaf út, og séra Matthías
nefndi eitt sinn „Almanakið mikla,“ birti útgefandinn bréf