Kirkjuritið - 01.01.1948, Page 30
28
KIRKJURITIÐ
frá séra Valdimar um Hallgrím Pétursson og kveðskap
hans, en almanak þetta var að mestu helgað 300 ára minn-
ingu Hallgríms. Ritar séra Valdimar þar um þennan dýrling
þjóðarinnar,“ er hann nefnir svo, af miklum skilningi á
gildi hans og blessunarríkum áhrifum Passíusálmanna, og
lýkur máli hans á þessa leið: ,, Það er jafnan varhugavert
að fara í mannjöfnuð, en ef ég mætti svara því, hver ís-
lenzkur maður hafi verið allra mestur velgerðarmaður
þjóðar sinnar, þá mundi ég — með allri virðingu fyrir
öðrum ágætismönnum þjóðarinnar —- frá þessu sjónarmiði
hiklaust svara: Hállgrímur Pétursson.“
1III. árg. Prestafélagsritsins árið 1921 ritaði séra Valdi-
mar, að ósk ritstjórans, grein um séra Matthías Jochums-
son sem trúarskáld. Mun. sú grein vera meðal hins síðasta
í óbundnu máli, sem prentað er eftir séra Valdimar. Var
hann þá orðinn gamall maður, og horfði á eftir skáld-
bróður sínum nýlátnum. Heiðríkja, hlýja og fegurð hvílir
yfir þessari minningargrein, þegar séra Valdimar réttir
Matthíasi hönd sína að skilnaði eftir alla þeirra löngu og
góðu viðkynningu og vináttu. Þeir höfðu verið tryggða-
vinir, meðan þeir lifðu báðir. En tæk 10 ár urðu á milli and-
láts þeirra. 1 grein sinni ræðir sr. Valdimar fyrst trúarskoð-
anir Matthíasar, þá trúarbaráttu hans og sálarstríð,þá hans
sterku og ósigrandi guðstrú og bjartsýni. Síðan er minnzt
sálmakveðskapar Matthíasar og hlutdeildar hans í Sálma-
bókinni. Segir séra Valdimar um starf hans og tillag þar:
„Eigi lét hann sérlega mikið til sín taka í nefndinni (Sálma-
bókarnefndinni), og lagði fremur fátt til mála, en gott eitt
það sem það var. Eigi lagði hann heldur ríflegan skerf til
bókarinnar að vöxtum, en því betri er hann að gæðum,“
o. s. frv. Mun það nú almenn skoðun, að þessi dómur sé
réttur. Þá ræðir séra Valdimar um annan skáldskap Matt-
híasar, andróðurinn gegn honum, bæði af hálfu andstæð-
inga kristninnar og strangtrúarmanna,, erfiðleika og mann-
raunir ævi hans, og þann góða og milda viðskilnað, sem
Guð gaf honum að lokum. — Þessi grein séra Valdimars