Kirkjuritið - 01.01.1948, Page 33
DR. THEOL. VALDIMAR BRIEM
31
sér. Enda var það svo á síðasta áratugi 19. aldar og fyrsta
aratugi hinnar 20., að ljóð eftir Valdimar Briem var venju-
^ega á fremstu síðu þeirra blaða og timarita, sem skiptu
ser af kristindómsmálum. Þarf eigi annað en líta í Kirkju-
blaðið, Verði Ijós, Nýtt kirkjublað o. fl. hér heima, og
^ameininguna vestan hafs til að sjá vinsældir séraValdimars
Sem skálds á þessu tímabili. Fór þá orðstír hans víða, bæði
utan íands og innan, og Stóri-Núpur var nafnkunnur og
fjölsóttur gestkomustaður, vegna þess að séra Valdimar
bjó þar.
Séra Valdimar hafði þá lokið starfi sínu í sálmabókar-
nefnd, og sálmabókin hafði komið út fyrsta sinni 1886,
SVo sem fyrr er getið. Með framlagi sínu til sálmabókarinn-
er hafði hann helgað sér sæti meðal helztu sálmaskálda
fslands, og mun íslenzk bókmenntasaga ætíð telja hann
eiga þann sess. Af frumkveðnum sálmum í bókinni átti séra
Valdimar langflesta, eða 106 samtals, og auk þess 36
býdda sálma. Um sjálft sálmabókarstarfið hefir dr. Jón
biskup Helgason ritað langt og ýtarlegt mál í minningar-
gi'ein í Prestafélagsritinu 1926, á aldarafmæli föður síns,
sera Helga Hálfdanarson, sem var formaður útgáfu-
uefndarinnar, og vann efalaust fyrirferðarmesta verkið að
'’tstjórn og útgáfu sálmabókarinnar, og lagði til hennar
flesta sálma, 145 þýdda og 66 frumorta. Gerist þess engin
börf að endurtaka hér söguna um það, hvernig sálmabókin
varð til. En geta má þess, að dr. Jón segir svo í grein
smni, að af nefndarmönnum öllum hafi séra Valdimar og
sera Stefán Thorarensen veitt séra Helga langmestan stuðn-
lnS, enda hafi séra Helgi litið svo á, að án hjálpar þessara
tvcggja manna hefði verkið aldrei unnizt. Þó mun séra
Valdimar hafa átt við nokkurn lasleika að stríða stundum
Um bað leyti er sálmabókin var í smíðum. Þeirra orsaka
vegna gat hann ekki komið á fund nefndarinnar í Reykja-
vík í júnímánuði 1879, né heldur sótt nefndarfund sumarið
1884, og var þá séra Helgi nokkurn tíma seinna um sumarið
„austur á Stóra-Núpi í sálmabókarerindum," að því er dr.