Kirkjuritið - 01.01.1948, Síða 45
DR. THEOL. VALDIMAR BRIEM
43
Séra Valdimar Briem var úr flokki þeirra manna, sem
1 fornöld hlutu sæmdarheitið hinn spaki. Hann var í senn
Vltur maður, hófsamur og friðsamur. Athyglisvert er, hve
°ft séra Matthías Jochumsson, þessi næmi, skilningsríki
^aður, víkur að þessu í bréfum sínum til séra Valdimars.
þetta var á vitund allra, er séra Valdimar þekktu, að
hann átti drjúgan, farsælan skerf sannrar vizku og speki.
í sambandi við það minnast orðanna í Jakobsbréfi (3,
: »En sú speki, sem að ofan er, hún er í fyrsta lagi hrein,
hví næst friðsöm, ljúfleg, sannsýn", o. s. frv. Friðsemi,
tjúflyndi og sannsýni séra Valdimars var á vitorði allra,
er hann þekktu. Þess vegna var hann jafnan sannur frið-
flytjandi og sáttasemjari, setti niður ágreining og þrætur
] sveit sinni og prestakalli, og hvar sem liðs hans var leitað
1 þeim efnum. Hann gat að vísu móðgazt og skipt skapi.
Hefir einn af gömlum sveitungum hans sagt mér, að ef það
kom fyrir, að honum rynni í skap á sveitarfundum, gekk
hann út sem snöggvast og jafnaði sig, og kom síðan inn
aftur. Fór þá venjulega svo, að sundurþykkjuefnin voru
leyst, og hann hafði sitt mál fram í aðalatriðum. Sami
Riaður hefir sagt mér, að Gnúpverjum hafi stundum þótt
n°g um friðsemi hans í sýslunefnd Árnessýslu, einkum í
úeilum við Flóamenn um afréttarmál. Sást í því, að hann
var of víðsýnn maður til að reka mjög þrönga „hreppa-
Pólitík". Hafði séra Stefán Stephensen átt að segja við
hann einhvern tima í sýslunefndinni: „Leggðu nú friðar-
íúkurnar yfir þetta.“ Er auðskilið, hvernig á þessu spaugs-
yrði stendur. Séra Valdimar var kunnur að því að vilja
slétta alla misklíð lífsins með lipurð, hægð og ró, hvar sem
hann var að verki, en fylgdi þó fram með festu og vilja-
breki hverju því málefni, sem hann tók að sér og taldi
réttmætt vera. Fyrir þetta varð hann svo vinsæll og virtur
af sveitungum sínum og samferðamönnum, að slíks eru
fá dæmi.
En hér bar fleira til. Heimili hans var mótað af þessum
sama anda, friðsemi og frjálsmannlegri gleði, og þó fastri