Kirkjuritið - 01.01.1948, Page 73
GUÐSPJALLIÐ Á SNORRAHÁTÍÐINNI 71
Guðspjall þessa helgidags er ein þeirra frásagna, er getur
tess, að Jesús mettar fjölda manns af fáeinum brauðum-
°g fiskum. Um þessar frásagnir guðspjallanna hefir verið
rnikið deilt. Vilja sumir bera brigður á sannleiksgildi þeirra.
I dag læt ég þær deilur fram hjá mér fara. Aðeins vil ég
taka það fram, að þeir, sem þessar sögur skráðu, guðspjalla-
rnennirnir, trúðu þeim án efa og sögðu frá þessum atburð-
rrrn sem algerri staðreynd. Ég vil og benda á, að tilveran
er næsta dularfull og oss mönnum enn að miklu hulin.
Vér trúum á almáttugan og eilífan Guð, sem að baki henni
býr, sem allt hefir skapað. Vér viðurkennum, að lögmál
tilverunnar hafi hann í hendi sér — að allt vald sé hans.
Hví skyldi hann þá ekki hafa megnað að gefa sínum elskaða
syni, Jesú Kristi, vald til þess og mátt að metta 4—5 þús-
undir manna á fáeinum fiskum og brauðum? Ég get ekki
að því gert, að mér finnst broslegt að deila um slíkt. Sýnu
nær er að íhuga þessi undur guðlegs máttar með hugarfari
trúaðs — leitandi manns — og láta þessi tákn Guðs ást-
semda og náðar verma hjörtu vor og gera oss að sönnum
lærisveinum Jesú Krists.
En af þessari frásögn um mettun þúsundanna má margt
fleira læra. Engin frásaga guðspjallanna flytur oss boðskap
fyllri lífsvonar né lífshamingju. Þar birtist oss í hinni æðstu
mynd auðgi lífsins og vald andans yfir efninu. Þar birtist
oss, svo að ótalmargt annað sé ekki nefnt, hvað kristin-
dómurinn hefir oss mönnunum að flytja, og hversu fátækur
sá er, sem fer á mis við allan hans himneska auð. Þennan
boðskap hefir kirkja Krists í 19 aldir boðað mannkyninu
án afláts. Hún hefir orðið að þola margt mótdrægt í því
starfi sínu, og játað skal, að margt hefir henni mistekizt,
enda ekki við öðru að búast, þar sem þjónar hennar hafa
verið ófullkomnir menn — aðeins trúað á það, að Jesús
Kristur væri vegur, sannleikur og líf.
Ég stend ekki hér í prédikunarstóli í dag til að bera sakir
af kirkju Krists, enda annað þarfara. Aðalatriðið er, að
meistarinn sjálfur, Jesú Kristur, er án saka, hreinn,