Kirkjuritið - 01.01.1954, Qupperneq 4
GLEÐILEGT NÝÁR!
1 uppliafi nýja ársins vil ég senda lesendum Kirkjwrits-
ins „kveðju Guðs og mína“, eins og feður vorir komust
að orði. Jafnframt vil ég þakka þeim liðin ár, er ritið
hefur nú göngu sína hið tuttugasta. Margar vinarkveðjur
hafa ritinu borizt á þessum árum og fjöldi góðra gi'eina.
öll þessi ár hefi ég verið ritstjóri þess, en meðritstjórar
þeir samkennarar minir Sigurður prófessor Sívertsen, 1935
—1937, og dr. Magnús prófessor Jónsson, 191/0—191/8, og
minnist ég með þökk samsta7'fsins við þá.
Nú ei' það ætlunin, að Kii'kjuiitið stækki og komi út
í tíu heftum á þessu ári og komi þannig að einhverju leyti
i stað Kirkjublaðsins, er dr. Sigurgeir Sigurðsson biskup
gaf út. En hann ræddi oft um það við mig siðustu ái'in,
að heppilegt myndi og æskilegt að sameina Kirkjui'itið
og Kirkjublaðið. Verður Kii'kjuntið pÁnnig sent kaupend-
um Kirkjublaðsins i þeiri'i von, að þeir kaupi það og lesi,
enda mun verð þess ekki hækka þrátt fyrir stækkunina
og hefir það þó, að þvi er ég hygg, verið selt vægustu
verði alli'a tímarita á Islandi.
Þar sem ný og aukin störf hafa nú lilaðizt á mig, sé
ég mér ekM fært að annast ritstjórnina eins og áður, sér-
staklega þar sem ritið verður stækkað svo mikið. Hefir
dr. Magnús Jónsson prófessor nú að ósk minni og stjómar
Prestafélagsins tekið á ný að sér i'itstjórn Kii'kjuritsins
með mér og fagna ég þvi. Meginþungi starfsins mun hvíla
á heiðum honum, en ég mun áfram jöfnum liöndum veita
viðtöku gi-einum i i'itið og skrifa í það, eftir því sem mér
kann að veitast tími til.
Óskum við báðir öllum lesendum Kirkjuritsins
árs og friðar.
Ásmundur Guðmundsson.
A