Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1954, Side 6

Kirkjuritið - 01.01.1954, Side 6
4 KIRKJURITIÐ Hrundar borgir og alls konar viðurstyggð eyðingarinn- ar bera vitni um ferilinn. Og enn grúfir yfir hið kalda stríð haturs, tortryggni og vígbúnaðar. Siðferðilegt los breiðist út á ótal sviðum. Ofbeldisstefnur beinast gegn kristindóminum: Kristin kirkja verður fyrst og fremst að falla, áður en fullkomin nýsköpun verður í heiminum. Kirkjan er fyrir framkvæmd- unum, er hefja skal. Hins vegar líta margir svo á, að kristindómurinn sé eina bjargarvonin úr nauðum heimsins, eina lausnin á vandamálunum. Lýðræði, frelsi, jafnrétti, mannhelgi, ætt- jarðarást og ótal mörg önnur verðmæti menningarinnar verði að sækja þangað þrótt sinn. Kristin trú þurfi að vera undirrót siðgæðisins. Ella þrjóti það. Já, hvaðan kemur heiminum hjálp, ef ekki frá kristin- dóminum? Kristindómurinn hefir aldrei brugðizt og mun aldrei bregðast. Vökumaður, hvað líður nóttinni? Er ekki dagurinn í nánd? II. Hér á Islandi virðast nú vera einhverjir mestu örlaga- tímarnir, er yfir þjóð vora hafa runnið. Enn hefir Island ekki orðið vettvangur heimsstyrjaldar, og vér höfum lifað síðasta mannsaldurinn undursamlegar framfarir, miklu meiri en oss gat órað fyrir. Þjóð vor er aftur orðin frjálst lýðveldi, sem ræður sínum eigin mál- um. Hún hefir reist fjölda skóla og ekkert sparað til þess að koma skólamálum sínum í horf. Háskóli hefir risið og þjóðleikhús og veglegar kirkjur hver af annarri. Á rústum torfbæjanna hafa risið steinsteypt hús, björt og hlý. Götur og troðningar hafa orðið að greiðum brautum og vatnsföllin verið brúuð. Kargamóar og fúamýrar hafa breytzt í rennslétt tún. Vér höfum tekið verzlun og sigl-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.