Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1954, Blaðsíða 13

Kirkjuritið - 01.01.1954, Blaðsíða 13
MEÐ ÁRI NÝJU, ÍSLANDSKIRKJA 11 og hugsa meir um það að skilja hjörtun og þarfir þeirra en að segja spakleg orð, leiðrétta sjálfa sig til þess að geta leiðbeint öðrum, reyna að vera öllum allt til þess að ávinna alla. Þannig rækir kirkjan bezt móðurköllun sína — af þeim kærleika, sem breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, um- ber allt. VII. Síðast nefni ég það, sem mestu varðar, og felur í raun- inni allt hitt í sér, sem þegar hefir verið sagt, og gefur því ljós og liti. Kirkjan á að vera Krists kirkja. Sumum kann að virðast óþarft að taka það fram, því að kirkjan sé Drottins hús og ekki sé önnur kirkja en kirkja Krists. En hversu mjög hefir það þó gleymzt á liðnum öldum og gleymist enn í dag, að kirkjan á að vera Krists kirkja. Hún hefir haldið mörgu því fram, og barizt fyrir með oddi og eggju, sem ekkert hefir átt skilið við Krist. Hún hefir hulið sig moldviðri kennisetninga og trúardeilna, kallað Jesú að vísu herra, herra, en ekki hirt um að gjöra það, sem hann hefir boðið. Hún hefir ekki leitað fyrst Guðs ríkis og réttlætis, eins og segir í Fjallræðunni, og því ekki veitzt allt annað að auki. Braut hennar í veröld- inni hefir ekki verið aðeins sigurbraut, eins og oss öllum er kunnugt. Kirkjan á að vera lifandi samfélag við Jesú Krist, upp- risinn drottin hennar og frelsara, alveg eins og fyrstu læri- sveinar hans voru, er þeir sáu sigur hans, sem mennirnir höfðu útskúfað og krossfest, og fundu kraft hans gagntaka sig í Ijóma páska og hvítasunnu. Þá er kirkja Krists kirkja vor, er vér finnum, að Krist- ur er lifandi veruleiki í lífi voru, sem gefur oss mátt til þess að risa upp aftur, er vér föllum, og heldur í hönd

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.