Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1954, Page 24

Kirkjuritið - 01.01.1954, Page 24
22 KIRKJURITIÐ Þarna sá ég Ásmund Guðmundsson eiginlega fyrst í útflytjendahópnum sumarið 1912, undir forustu okkar ágæta Ameríku-agents B. B. Olson.--------- Á öðru ferðalagi kynntumst við þó enn betur, þá orðnir fullorðnir menn, um fimmtugt. Það var á margra mánaða ferðalagi okkar um Landið helga. Ég ætla ekki að lýsa því sumri, svo barmafullt er það af alls konar endurminn- ingum og áhrifum. Og þá sá ég skýrar en nokkru sinni fyrr marga af mannkostum Ásmundar Guðmundssonar. Tveir einir í hersetnu landi, með morð og sprengingar daglega á götum úti, í opinberum byggingum, strætis- vögnum og hvar sem var, en jafnframt landi, sem átti hjarta okkar allt löngu fyrir fram og uppfyllti þó allar vonir okkar og bætti miklu við. Hér var tækifæri til þess að kynnast ferðafélaga, sem óhætt var að treysta út í yztu æsar, hvað sem fyrir kom, og á hverju sem gengi. Þessa mynd af heiðursgestinum okkar á enginn nema ég og með hana í huga mínum vil ég enda þessi orð. Guð og gæfan fylgi honum. Helztu œviatriði biskups herra Ásmundar Guðmundssonar. Hann er fæddur í Reykholti 6. október 1888, sonur Guð- mundar Helgasonar prófasts hins fróða og konu hans Þóru Ásmundsdóttur Jónssonar lektors. Stúdent 1908, cand. phil. og próf í hebresku í Kaup- mannahöfn 1909. Kandidat í guðfræði frá Háskóla Islands 1912. Prestur safnaða vestan hafs 1912—14. Prestur í Helgafellsprestakalli 1915—19.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.