Kirkjuritið - 01.01.1954, Síða 25
ÁSMUNDUR GUÐMUNDSSON BISKUP 23
Skólastjóri Eiðaskóla 1919—28.
Dócent og síðan prófessor í Guðfræðisdeild Háskólans
1928—54.
Dvaldi um hríð við framhaldsnám í Þýzkalandi og Eng-
landi og á Italíu.
Hefir gegnt fjölda starfa að kirkjumálum, fræðslumál-
um og mannúðarmálum, svo sem lesa má um m. a. í
Minningarriti aldarafmælis Prestaskólans, og gefið út
margar bækur og miklar og ritað fjölda greina í timarit.
Ritstjóri þessa tímarits hefir hann verið frá upphafi, ýmist
einn eða með öðrum. Á hann i því meira efni en nokkur
annar.
I stjórn Prestafélags Islands frá 1929, formaður frá
1936.
Kona hans er Steinunn, dóttir hins landskunna prófasts
°g alþingismanns Magnúsar Andréssonar á Gilsbakka.
Syni eiga þau fjóra, Andrés, Guðmund, Magnús og
Tryggva, og dætur þrjár, Þóru, Sigríði og Áslaugu.
Biskupskosningin.
Eftir útför dr. Sigurgeirs Sigurðssonar biskups ákvað Presta-
félagig að láta fara fram prófkosningu til undirbúnings vænt-
anlegu biskupskjöri, ef verða mætti til þess, að lögmæt kosning
fengist. Ákveðið var að birta ekki úrslit opinberlega og verður
það því ekki gert hér. En í blöðum var frá því skýrt, að pró-
fessor Ásmundur Guðmundsson hefði fengið flest atkvæði og
næst honum dr. Magnús Jónsson, fyrrv. prófessor. Birti M. J.
1 utvarpi og blöðum yfirlýsingu, þar sem hann mæltist ein-
dregið undan kosningu.
Prófkosningin náði tilgangi sínum, því að við talningu at-