Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1954, Qupperneq 28

Kirkjuritið - 01.01.1954, Qupperneq 28
26 KIRKJURITIÐ Jú, sannarlega virðum vér slíkan mann ekki mikils. Búddatrú hvetur áhangendur sína gjarnan til að sitja hljóða, svo dögum skiptir, við eins konar íhugunaræfingar. Helgir menn þeirrar trúar geta gleymt stund og stað við það eitt að stara á vissan blett, kannske á líkama sínum. Að vissu leyti geta slíkar íþróttir haft eitthvert gildi, en vestrænum þjóðum virðist niðurstaðan ófrjó, markmið þeirrar mannsævi furðu lítið, frá sjónarmiði heildarinnar, sem eytt er í svo gagnslítinn hlut. Kristur brýndi aftur á móti lærisveina sina til virkra athafna. Hann sagði: Farið í víngarð minn. Ávaxtið pund yðar, hver eftir sinni getu. Hér er boðskapur fluttur um líf og starf. Skipun gefin um að hefjast handa og taka þátt í vorstarfi, hvatning um að ganga hinu vaxandi lífi á hönd, efla gróðurinn í víngarðinum. Sá, sem gróf pund sitt í jörðu, fékk þungan áfellisdóm. Hann var talinn hafa svikizt undan mikilsverðri skyldu, hafa gerzt liðhlaupi í þeirri hersveit, sem Guð býður út skapandi lífi til blómgunar. Þurfum vér þá nokkuð að fyrirverða oss fyrir það, þótt vér nú við upphaf nýs árs gerum einhverjar áætlanir um daga framtíðarinnar? Sannarlega ekki. Vér sjáum þá standa framundan alla með tölu, eins og raðir fótgönguliða. Einn kemur eftir annan, allir heitir, rjóðir í kinnum, ákafir eftir að hefja göngu sína eftir her- lagi tímans. Einn, tveir, þrír — einn, tveir, þrír, fjórir, þar er vikan komin. Fyrsta tilbrigði lagsins eilífa hefir ómað upp yfir hinni hlustandi jörð, sem beið full eftir- væntingar eftir skóhljóði þessara fótgönguliða. Og bik- arar eru helltir fullir og menn teyga þá, sumir glaðir og reifir, — en aðrir dæmdir til að drekka sína eigin kvöl og sorg af barmi þeirra. Þannig deila komandi dagar mönnum út mismunandi kjörum, eftir órannsakanlegum leiðum. Á fjöru eins koma hvers konar höpp, annar hlýtur skorinn verð og óvæntustu erfiðleika.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.