Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1954, Page 30

Kirkjuritið - 01.01.1954, Page 30
28 KIRKJURITIÐ gjarnan koma í ljósengils líki og bjóða samfylgd sina. Hver, sem fellur fyrir þeirri freistingu, að gera við þau bandalag, uppsker auðn og hvers konar glötun. En þó að myrkrið herji fastan á í ýmsum myndum, má hinu ekki gleyma, að uppi yfir hverju nýju ári standa einnig sólgylltir stafir Jesú frá Nazaret, því að á fyrsta degi ársins var hann borinn í helgidóminn og hlaut þar nafnið Jesús. Það er því sem vernd og kraftur stafi frá nafni hans niður yfir hvert nýtt ár. Grunntónninn í boðskap hans er hvatning til allra um að gefa sig aldrei myrkrinu á hönd. Rödd hans vakir ofar árum og öldum. Með krafti lúðurhljóms vill hún blása liði saman gegn valdi vonzkunnar, mót öllu því, sem hreiðra vill um sig í skuggunum. Og það lið, sem hann býður út, á að heyja baráttu sina undir vernd Guðs, þrungið af lífi hans og anda. Ljósið eitt getur unnið myrkrinu grand. Það gerir það með því að senda strauma geisla sinna inn í hvern kima, inn í hjörtu meðbræðranna, sorg hinna föllnu, og varpar birtu yfir sérhvert verk, sem illt vill fremja. Guð faðir og skapari lífsins vill ekki á neinn hátt svæfa athafnaþrána, sem blundar í brjóstum barna sinna. Hann horfir ekki með vanþóknun á þær áætlanir, sem menn gera á öndverðu ári, drauma og hugsjónir, sem skapa vilja nýjan himin og nýja jörð. En hann lýsir ógn og tortímingu yfir spor allra þeirra, sem hyggjast koma áformum sínum fram fyrir mátt þess myrkurs, sem spenna vill allt helgreipum. Allra þeirra, sem helga vilja sig ljósinu og lífinu, biður heill í hverju spori, þótt mótdrægt kunni að blása. En hinir, sem sverjast í fóstbræðralag við sviksemina, ódreng- skapinn og eiginhagsmunahyggjuna, standa óhjákvæmilega einmana uppi áður en lýkur, vegalausir í dimmri nótt. Uggur er enn sem fyrr í mörgum, sem fram horfa til

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.