Kirkjuritið - 01.01.1954, Síða 33
Séra Halldór Jónsson írá Reynivöllum.
Þegar mér hefir verið hugsað
til lífs og starfs séra Halldórs
Jónssonar frá Reynivöllum, hafa
Þessi orð Krists tíðum komið
•ttér í hug: „Oss ber að vinna
verk þess er sendi mig, meðan
dagur er. Það kemur nótt, þeg-
ar enginn getur unnið.“ Ekkert
Veit ég túlka betur líf hans og
Þann skilning, sem mér virtist
hann sjálfur hafa á tilgangi lífs-
starfs síns en þessi orð: „Oss
ber að vinna verk þess, er senai
mig, meðan dagur er.“
Þessi orð komu mér í hug, er ég sá hann sem aldraðan
Pfest í fyrsta skipti, og heyrði hann tala. Þau fáu orð,
sem hann þá lét falla, virtust mér sýna vel, hversu glögg-
an skilning hann átti á því, að lífsdegi hans væri farið
að halla, og þess vegna bæri sér ekki að taka sér hvíld
frá löngu og erfiðu ævistarfi — heldur að starfa — starfa
af enn þá meira kappi en nokkurn tíma áður, því að
nóttin nálgaðist óðum, þegar ekkert væri hægt að vinna,
en mörg verkefnin óleyst enn þá.
Ég var djúpt snortinn af þessum aldraða Drottinsþjóni,
sem talaði hér af eldmóði og lifskrafti hins unga manns.
Seinna, þegar leiðir okkar lágu saman, og ég kynntist
honum persónulega, lærðist mér það enn betur, að þetta