Kirkjuritið - 01.01.1954, Qupperneq 35
SÉRA HALLDÓR JÓNSSON
33
dóttur, er þau gengu að öllu leyti í foreldra stað. Frú
Kristín lézt árið 1941 eftir langa vanheilsu.
Ég mun ekki geta hér nema lítið eitt hinna fjölmörgu
starfa, sem séra Halldór gegndi fyrir sveitarfélag sitt og
sýslu. Þar var yfirleitt um flest þau trúnaðarstörf að ræða,
sem sveitarfélag hefir að bjóða. I hreppsnefnd var hann
hálfan fimmta tug ára, og hreppsnefndaroddviti mestan
hluta þess tímabils. Sýslunefndarmaður var hann í fjóra
tugi ára. öll þau margháttuðu störf, sem hann vann í
Þágu sveitar sinnar og sýslu, framkvæmdi hann af sér-
stakri alúð og skyldurækni, með hag fólksins einan fyrir
augum. Einnig þar hafði hann í huga orðin: „Oss ber að
vinna verk þess, er sendi mig.“ Aldrei hygg ég, að það
hafi hvarflað að honum að keppa eftir neinu starfi eða
stöðu, er veitti sjálfum honum hagnað á einn eða annan
hátt.
Hann sýndi það ótvírætt og á marga lund, að hann vildi
fyrst og fremst vera vinur og bróðir fólksins, sem hann
lifði og starfaði með, og sannur sonur þjóðar sinnar.
Sýndi hann þetta meðal annars með hinum fjölmörgu
ahugamálum sínum, sem öll beindust að því einu að bæta
hag
annarra á einhvern hátt.
Var séra Halldór löngu orðinn þjóðkunnur maður fyrir
hin fjölmörgu skrif sín um ýmiss konar málefni, er hann
taldi að mættu verða til bóta. Meðal annars ritaði hann
margt og mikið um búskap, þar sem hann hvatti bændur
til margs konar nýjunga, sem hann taldi að mættu bæta
afkomu þeirra og tryggja framtíð sveitanna. Er mér kunn-
ngt um, að þeir eru margir víðs vegar um landið, sem
telja sig eiga honum marga góða vísbendinguna í þessum
efnum að þakka.
Á margvíslegan hátt sýndi séra Halldór ást sína til
hjóðar sinnar og einlæga löngun til að efla hag hennar
a sem flestum sviðum. Má í því sambandi nefna Islands-
a®tlun hans og hina svo kölluðu tíu ára áætlun, sem þegar
hefir fengið heillavænlegan hljómgrunn eins og mörgum